15.07.2024 1292247
Ásbúðartröð 3
220 Hafnarfjörður
31 myndir
69.900.000
638.940 kr. / m²
15.07.2024 - 32 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 16.08.2024
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
109.4m²
Fermetrar
Tegund
HæðirByggingarár
1953Fasteignamat
63.800.000Inngangur
Tveir inngangarFastanúmer*
2073468Byggingarnúmer*
1027499Brunabótamat
48.800.000Verðmat Fastans
Væntanlegt
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Sjarmerandi og vel skipulögð 109,4 fm miðhæð í þríbýlishúsi sem stendur á skjólgóðum stað neðst í Holtunum í Hafnarfirði. Tveir sameiginlegir inngangar eru í húsið, framhlið og á gafli hússins við geymslu/þvottahús. Eignin er með 3 mjög rúmgóðum svefnherbergjum, auk þess sem geymsla var áður nýtt sem herbergi, stofu og afar rúmgóðu eldhúsi, suðursvölum og endurnýjuðu baðbergi. Sameiginlegur gróinn garður með læstum geymsluskúr við hlið hússins í sameign húsfélagsins.Tvö stæði eru á lóðinni. Í 2 mínútna göngufjarlægð er stór matvöruverslun, stutt í skóla og ca 800 metra gönguleið inn í miðbæ Hafnarfjarðar. Hús og þak er nýlega málað og nýtt teppi á sameign. Búið er að endurnýja glugga og svalahurð á suðurhlið og austurhlið íbúðarinnar. Gæludýrahald er leyft í húsinu (þinglýst yfirlýsing). Fasteignamat 2025 er áætlað 64.950.000 kr.
**SÆKTU ÞÉR SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST HÉR**
**SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD (3-D) OG GAKKTU UM HANA Í TÖLVU EÐA SNJALLTÆKI**
Nánari lýsing:
Gengið er upp eina hæð í sameiginlegu stigahúsi með nýju teppi á gólfi. Framan við íbúð er pláss fyrir fatahengi og skóhillur.
Plastparket er á allri íbúðinni, nema votsvæðum sem eru flísalögð
Hol: Komið er inn í rúmgott hol sem tengir saman öll rými íbúðarinnar. Þar er innbyggður fataskápur fyrir yfirhafnir.
Stofa: Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum til tveggja átta. Endurnýjaðir gluggar. Skápur/hillur á vegg eru ekki fylgifé fasteignar.
Eldhús: Afar skemmtilegt eldhús sem er endurnýjað að hluta. Eldri innréttingu var haldið hvað neðri skápa varðar, en búið er að endurnýja borðplötu og vegghillur. Frístandandi eldavél. Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu. Gott gólfrými og því gott pláss fyrir eldhúsborð/ borðstofuborð og samverusvæði. Flísar á gólfi.
Herbergi1: Var áður borðstofa, innangeng úr stofu. Hvítir skápar á einum vegg og parket lagt upp á skápavegg og myndar rúmgafl. Útgengi á suðursvalir. Nýr gluggi og svalahurð.
Herbergi 2: Mjög rúmgott. Gluggi endurnýjaður.
Herbergi 3: Mjög rúmgott, skápur með rennihurð eftir einum vegg.
Geymsla / (Herbergi 4): Nett herbergi með áföstum rúmgafli og tengi fyrir vegglampa. Þetta er geymsla í dag en var áður nýtt sem lítið herbergi. Rúm í fullri lengd kemst þarna inn.
Baðherbergi: Baðherbergi var uppgert nýverið. Flísar á gólfi, salerniskassa og kringum baðkar sem er með sturtuaðstöðu. Upphengt salerni, handlaug með svartri glans innréttingu og svörtum veggskáp. Hvítur handklæðaofn. Nýlegur gluggi.
Sameiginlegar geymslur og þvottahús: Á jarðhæð er innangengt þvottahús og hjólageymsla með inngangi á gafli hússins. Sameiginlegar geymsluhillur. Á 3. hæð er sameiginlegt háaloft sem er nýtt sem sameiginleg geymsla. Einnig er sameiginlegur útiskúr sem er nýttur sem geymsla við hlið hússins.Málað 2020. Nýlegt teppi á stigagangi.
Viðhald og endurnýjun fasteignar á eignatíma núverandi eiganda:
2024: Nýyfirstaðin viðgerð vegna lekaskemmdar í lofti frá niðurfalli á þaksvölum í herbergi 1 (það stíflaðist niðurfall sl. vetur og gleymdist að hreinsa frá)
2023: Gluggi í herbergi 1 endurnýjaður sem og svalahurð og karmur.
2023: Nýtt teppi sett á stigagang og málað.
2021: Múrviðgerð á gafli hússins, húsið allt málað að utan sem og þak
2020: Baðherbergi endurnýjað (innréttingar, baðtæki, flísar og málað, nýr gluggi).
2020: Þvottahús málað, veggir og gólf.
2020: Eldhúsgluggi og stofugluggi austurhlið endurnýjaðir.
(Fyrri eigendur höfðu endurnýjað stærri stofugluggann og í herbergi 2)
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar er hjá
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur: [email protected], sími 897 7712
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður: [email protected], sími 822 5124.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Við erum að vinna að uppfærslu á Verðmati Fastans. Það kemur aftur von bráðar.
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1292247
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 69.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 48.800.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 63.800.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 638.940
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 109.4
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 15.07.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 16.08.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 15.07.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 220
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Ásbúðartröð 3
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : hæðir
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1953
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Tveir inngangar
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 0
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Ásbúðartröð
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 3
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina