Söluauglýsing: 1287559

Skólavörðustígur 6

101 Reykjavík

Verð

72.900.000

Stærð

67.2

Fermetraverð

1.084.821 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

58.950.000

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

Símanúmer

hero

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu


MATTHILDUR SUNNA LGFS OG TORG FASTEIGNASALA KYNNA Í EINKASÖLU: 67,2 fermetra  3ja herbergja íbúð á 2. hæð með stórum norðaustur svölum í fjölbýlishúsi í hjarta miðborgarinnar.  Aðeins er gengið upp eina hæð í stigahúsi að íbúðinni. Stutt er í alla þjónustu. Íbúðin er laus til afhendingar ágúst 2023.
Nánari lýsing:
Komið er inn í anddyri sem tengir öll rými íbúðar, alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin er upprunalega tveggja herbergja en stúkað hefur verið af annað herbergi sem hægt er að fjarlægja.
Stofa er rúmgóð og tengist björtu eldhúsi með viðarlitaðri innréttingu og ljósri borðplötu.
Svefnherbergi eru bæði rúmgóð og með skápum. Útgengt er úr báðum svefnherbergjum á 18,5 fermetra svalir til norðausturs.
Baðherbergi er með nettri, viðarlitaðri innréttingu og efri speglaskáp, sturtu og flísalagt í hólf og gólf. 
Gólfefni á íbúð er parket, fyrir utan baðherbergi þar sem eru flísar.
Í kjallara er sérgeymsla, 6,4 fermetrar, sameiginlegt þvottaherbergi, með sér tenglum fyrir hverja íbúð og aðstaða til að geyma hjól undir innistiga.

Nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir lögfræðingur og löggiltur fasteignasali í síma 690 4966 eða [email protected]
Þorlákur Ómar Einarsson löggiltur fasteignasali í síma 820-2399 eða [email protected]
Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.     

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband