Söluauglýsing: 1286926

Snorrabraut 62

105 Reykjavík

Verð

62.900.000

Stærð

61.3

Fermetraverð

1.026.101 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

6.780.000

Fasteignasala

Fastborg

Símanúmer

hero

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Borg fasteignasala kynnir til sölu nýjar glæsilegar íbúðir að Snorrabraut 62, Reykjavík. Snorrabraut 62 er 35 íbúða lyftuhús á fjórum hæðum með kjallara. Íbúðirnar skiptast í stúdíó, 2ja -3ja herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefni. Afhending í nóv-des 2023.  

Íbúð 203 er glæsileg 61,3 fermetra 2ja herbergja íbúð á annarri hæð. Íbúðin skiptist í anddyri, stofu og eldhús í alrými, svefnherbergi, baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og sérgeymslu í sameign. Íbúðin skiptist eftirfarandi, íbúð 52,1 fm og sérgeymsla í sameign  merkt 0006 9,2 fm, samtals 61,3 fm. 
Leyfi fyrir gæludýrahaldi er í húsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð, með aðgengi frá lóð. 


Skipulagsgjald. Kaupandi greiðir skipulagsgjald af eigninni, þegar það verður lagt á. 
Húsið er staðsteypt, einangrað og klætt að utan með Cembrit plötum, Equitone plötum og litaðri báruklæðningu. Gluggar á 2. – 4. hæð eru álklæddir timburgluggar frá Byko hf. Á jarðhæð eru álgluggar frá BYKO. Í kjallara er tæknirými og sérgeymslur íbúða. Helstu gönguleiðir utanhúss eru með snjóbræðslu.

Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins með því að smella hér https://snorrahus.is/

ATH. Myndir eru af sýningaríbúð.

Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari  í síma 897-1401 [email protected]  og Úlfar Þór Davíðsson löggiltur fasteignasali 788-9030 [email protected]  hjá BORG fasteignasölu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

Innréttingar og efnisval
Íbúðirnar skilast fullbúnar að innan. Á gólfum öðrum en votrými er parketlagt með Tundra Oak Plank parketi frá Agli Árnasyni. Baðherbergi- og þvottahúsgólf, eftir því sem við á, skilast flísalögð með 60x30 flísum frá Agli Árnasyni, 1. flokkur (Concept 30*60, Greige. Íbúðarhurðir í stigagöngum verða ECS 30 DB42 yfirfelldar, 90 cm á breidd.

Innihurðir
Innihurðir og karmar eru lakkaðar hvítar, 80 cm, Prum Tuer (Harðviðarval), eða sambærilegt. Þröskuldur verður í hurðaropum á baðherbergi.
Innréttingar
Allar innréttingar og fataskápar eru frá HTH.

Eldhús
Innréttingaeiningar verða í samræmi við sérteikningu frá HTH. Heildar hæð innréttingar er 2278 mm. LED borði í efriskápum og lokað er frá innréttingu upp í loft. Innréttingar eru klæddar með 28 Stockholm, sem er melamin í brúngráum lit. Borðplata á eldhúsinnréttingu er úr steini (Meteor Cold) frá S. Helgasyni. Lamir eru frá Blum, skúffubrautir eru LUX frá Blum m/ ljúflokun. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og lagt fyrir henni. Eldhústæki verða frá AEG eða sambærilegt, keramik helluborð og blástursofn. Gufugleypir yfir helluborði verður frá AirForce eða sambærilegt. Stálvaskur með einnarhandar blöndunartæki verður felldur í borðplötu.

Baðherbergi
Baðherbergi verður flísalagt, gólf og veggir í kringum sturtu í um það bil 2ja metra hæð. Flísar eru 60x30 Concept Greige, 1. flokkur frá Agli Árnasyni. Innrétting verður frá HTH, klædd með 28 Stockholm, sem er melamin í brúngráum lit.. Vatnskassi verður innbyggður með vegghengdu salerni með hæglokandi setu. Handlaug og sturtutæki með Grohe eða sambærilegu blöndunartæki. Sturturými er með vatnshalla og gólfrennu, afmarkaður með glervegg þar sem við á.

Gólfefni
Íbúðir eru afhentar parketlagðar með Tundra Oak Plank harðparketi frá Agli Árnasyni. Gólf baðherbergja er flísalagt sem og gólf og veggir í kringum sturtu upp í loft.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband