Söluauglýsing: 1285640

Stillholt 1

300 Akranes

Verð

119.900.000

Stærð

269.5

Fermetraverð

444.898 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

84.700.000

Fasteignasala

Domusnova

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 1 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

*Domusnova og Ragga Rún lögg.fasteignasali kynna: Stillholt 1

**SKOÐA SKIPTI Á EIGN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU**

Mikið endurnýjað 269.5 fm einbýlishús á 3.hæðum að meðtöldum 38.3 fm bílskúr.
Möguleiki að innrétta sér íbúð á jarðhæð, með sér inngangi.
Eignin skiptist í 6 svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu og sólskála. Baðherbergi gestasalerni, þvottahús og geymslu. Einnig er góður 38fm bílskúr. Tvennar svalir út frá sólstofu og sólpallur í suður. 

***Frábært útsýni***

Jarðhæð:
Inngangur:
Plastparekt á gólfi.
3 stór svefnherbegi  með parketi á gólfum
Þvottaherbergi með glugga.
Hægt er að bæta við baðherbergi og eldhúsi á jarðhæð

Einnig er gólfhiti á jarðhæðinni sem er kynntur með affalli frá húsinu.

Miðhæð:
Forstofa: Flísalögð og með fatahengi.
Gestasalerni: Flísar á gólfi. sturtuklefi, wc og skápur, gluggi.
Hol: Parketlagt.
Eldhús: Falleg eldhúsinnrétting, hvít/eik með eyju og góðu skápaplássi. Góð eldhús tæki, span helluborð, innbyggð uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur, gólfhiti.
Stofa og borðstofa: Parket á gólfi dyr út á sólfstofu.
Sólstofa: Góð sólstofa með útgang á 3 vegu. Gengið er út á tvennar svalir. Minni svalir í norður og stórar svalir í suður. Einnig er útgangur niður á suður sólpall  sem er með heitum potti. Stýring fyrir heitan pott í sólskála.
Stigi upp á efri hæð er teppalagður.

Efri hæð/ris:
Svefnherbergi I:
Barnaherbergi með parket á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi II: Rúmgott með parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott herbergi með parket á gólfi og fataskáp. Suður svalir.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi, baðkar og snyrtilegri innréttingu.

Auðvelt að gera auka íbúð á jarðhæð með sér inngöngu hurð, þar sem auðvelt er að komast í allar lagnir. 

Bílskúr: 38,3 fm bílskúr. Heitt og kalt vatn og hiti. bílskúrshurð og bílskúrshurðar opnari. Inngöngu hurð einnig í enda bilskúrs. 
Köld útigeymsla er undir tröppum aðalanddyris og lágt til lofts. 

Endurnýjað:
Miðhæð, hurðakarmar og ofnalagnir á miðhæð 2010
Hurðir, ofnalagnir í kjallara. Gólfhitalögn í þvottahúsi, gangi og stærsta herberginu í kjallaranum. 2010 
3 fasa rafmagn í aðaltöflu, endurn. í öllum rafmagnstöflum. Varmaskiptir 2013
Svalahurð út í sólskála  2015.
Blöndunartæki í risi endurnýjað 2016.
Þakjárn endurnýjað 2017,
Teppi á stiga upp í ris og niður í kjallara  2017.
Eldhúsinnrétting frá Trésmiðju Akraness, ljós rafmagn endurnýjað og settur gólfhiti. 2017
Skipt um loftaplöturnar í holi og andyri 2017.
Handrið á svölum í risi 2019
Ris 2018 -2019 Endurbyggt að öllu leyti. 3 rúmgóð svefnherbergi, milliveggir, gólfefni, skápar, rafmagn, ofnalagnir  (nema baðherbergi)
Byggður sólskáli árið 2020. Flísar á gólfi, teppi lagt yfir. Svalir út frá sólskála suður,  tjörudúkur bræddur og lagt timburdekk ofan á. 
Tröppur niður á pall frá sólskála 2020
Neyslulagnir endurnýjaðar að öllu leiti 2020
Garður: grindverk 2022
Búið er að endurnýja /yfirfara flesta glugga og gler á tímabilinu 2017- 2023
 
Nánari upplýsingar veitir:
Ragnheiður Rún Gísladóttir löggiltur fasteignasali [email protected]  / sími 861-4644

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband