Söluauglýsing: 1285403

Stekkholt 20

750 Fáskrúðsfjörður

Verð

185.000.000

Stærð

238.5

Fermetraverð

775.681 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

46.950.000

Fasteignasala

Hallir Fasteignamiðlun

Símanúmer

hero

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Hallir Fasteignamiðlun kynnir í einkasölu mjög reisulegt og vel skipulagt bjálkahús, sem rekið er sem gistiheimili, ásamt  stórum sérstæðum bílskúr, á einstöku útsýnisstað á Fáskrúðsfirði. Húsið stendur hátt inn í rólegri botnlagnagötu og er fjallshlíðin rétt fyrir ofan götu. Gistihúsið er í fjölskyldueigu og er á Fáskrúðsfirði sem er við austurströnd Íslands.
Heildarflatamál hússins er 238,50 fm, þar af er bílskúr 80,3 fm skv skráningu í fasteignayfirliti HMS.
Þetta er tveggja hæða bjálkahús og skiptist á eftirfarandi hátt; 
Á neðri hæð er eldhús og stofa í alrými með útgengi út á stóra verönd, baðherbergi með sturtuaðstöðu, stórt svefnherbergi með útgengi út á stóra verönd, lítið herbergi, fostofa og stórt þvottahús með útgengi út í garð.
Efri hæð skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi og þau eru öll með handlaug, þar af er eitt herbergi með útgengi út á svalir, baðherbergi með sturtuaðstöðu.
Bílskúrinn er 80,3 fm og er með heitu og köldu vatni. Hægt er að nýta bílskúrinn undir fleiri gistirými eða útbúa lítið "einbýlishús".
Leitast var við að innrétta húsnæðið í hlýlegum og heimilislegum sveitastíl sem hefur fallið vel í kramið hjá ferðalöngum.
Stór heimreið fyrir framan hús með nægum bílastæðum. Stór viðhaldslítill garður, eignin er umkringd trjám sem mynda skemmtilega umgjörð kringum húsið ásamt
 stórkostlegtuútsýni til allra átta . Húsið er nokkuð nýlegt og hefur fengið ágætt viðhald í gegnum árin.
Verslanir og veitingastaðir eru í 10 mínútna göngufjarlægð og fallegar gönguleiðis liggja í kring um húsið. Reyðarfjörður er í 20 mínútna akstursfjarlægð.
Hægt er að semja um að húsgögn og búnaður fylgir eigninni.

Bókið skoðun og fáið allar frekari upplýsingar hjá Heiðu Guðmundsdóttur, hdl., löggiltum fasteignasala í síma 779-1929  og á netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hallir Fasteignamiðlun ehf því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband