Söluauglýsing: 1285281

Stórikriki 53

270 Mosfellsbær

Verð

229.000.000

Stærð

373.3

Fermetraverð

613.448 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

183.600.000

Fasteignasala

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Símanúmer

hero

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

** Opið hús miðvikudaginn 3. júlí frá kl. 17:00 til 18:00  - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Stórikriki 53,  373.3 fm glæsilegt fullbúið einbýlishús á einstaklega góðum stað rétt við skógræktar og útivistarsvæði efst í botnlangagötu á stórri lóð. 2ja herbergja 58,4 fm séríbúð á neðri hæð á sérfastanúmeri en selst eingöngu saman. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá Brúnás í aðalíbúðinni. Stórar stofur, vandað eldhús, 3 góð herbergi á efri hæðinni og möguleiki á því 4ða.  Stórar timburverandir, heitur pottur, skjólgóður garður. Stór bílskúr með rafhleðslustöð og innaf bílskúr er "dótakassi" og stór geymsla. Bílskúr og geymslur eru með aukinni lofthæð (um 2,75m).    Eignin er skráð sem hér segir hjá Þjóðskrá: Fastanr. 229-7263, nánar tiltekið eign merkt 01-01.  Efri hæð og hluti neðri hæðar eru skráð 214,0 fm. Eigninni fylgir bílskúr sem er merktur 01-03, stærð bílskúrs, geymslu og aukarýmis/dótakassa er 100,9 fm. Aukaíbúðin á neðri hæð er merkt 01-01-02, stærð hennar er 58,4 fm þar af sérþvottahús og geymsla 9,6 fm, birt heildarstærð hússins er 373.3 fm. Svalir eru til suðurs og austurs í L frá efri hæð og eru skráðar ca 36 fm. 
Eignin skiptist í:

Aðalíbúðin: Forstofa, innangengt í bílskúrinn, gestasnyrting, steyptur stigi uppá efri hæðina, 3 svefnherbergi, stórt alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, sjónvarpshol/má gera að 4 svefnherb. 
Aukaíbúð: Sérinngangur, forstofa, eldhús, baðherbergi, stofa og svefnherbergi, sérþvottahús og geymsla (sérinngangur á hlið hússins)

Nánari lýsing eignarinnar:
EFRI HÆÐ OG HLUTI NEÐRI HÆÐAR: Gólfhiti í öllum gólfum íbúðarhlutans en hefðbundnir ofnar í bílskúr.
Forstofa á neðri hæð, innangengt í bílskúr sem auðveldlega rúmar 2 og jafnvel þrjá bíla, innaf er "dótakassi" og stór sérgeymsla. Hol, steinteppi, í stigaholi er "tjörn" og stór steypt súla/ "gosbrunnur" þar sem vatn fellur niður vegginn í tjörnina.
Gestasnyrting flísalögð, innrétting og vegghengt salerni. Góður steyptur stigi upp á efri hæðina með steinteppi.
Efri hæðin er: Stórt alrými sem er rúmgott flísalagt eldhús með stórri eldeyju, vandaðri sérsmíðaðri innréttingu frá Brúnás og opið er yfir í stóra stofu og borðstofu, planka parket, hátt til lofts og innfelld lýsing í loftum eins og í allri efri hæðinni sem er með mikilli lofthæð og fallegri loftaklæðningu. Í stofu er sérsmíðaður vandaður arinn, gólfsíðir gluggar og gengið bæði til austurs, vesturs og suðurs út á svalir og þaðan í bakgarðinn. Sjónvarphol, parketlagt , gengið út í garðinn til suðurs, má loka og breyta í 4ða svefnherbergið. Þvottahús stórt, flísalagt gólf, vönduð innrétting. Glæsilegt flísalagt baðherbergi með stórri baðlaug með sturtu, vegghengt salerni, gluggi á baði. 
Þrjú góð svefnherbergi með parketi og skápum. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Brúnás. 
ÍBÚÐ Á NEÐRI HÆÐ: Sérinngangur með skápum, hol, eldhús með góðri innréttingu , stofa. Fallegt flísalagt baðherbergi með sturtuklefa, vegghengdu salerni og innréttingu, tengi fyrir þvottavél. gluggi á baði.  Svefnherbergi með aðgengi útá yfirbyggða steypta verönd og sólpall.  Sérþvottahús og geymsla fylgir neðri íbúðinni með sérinngangi á norðurhlið hússins. 
Mjög auðvelt er að sameina íbúðirnar í eina þar sem hurðargat er í holi milli íbúðanna eða nýta leigutekjur af aukaíbúð til að létta kaup og rekstur hússins.
Stórt bílaplan framan við húsið , bomanit steypa, hitalagnir bæði í bílaplani og göngustíg framan við húsið. 
Stór bakgarður með bæði góðri timburverönd , afgirtur garður með grasflöt og gróðri. Hitaveitupottur á verönd, yfirbyggt grillskýli og geymsla fyrir garðáhöld.
Ofan við húsið er Lágafellsskógræktin og eintakt útivistarsvæði og gönguleiðir. Göngufæri í skóla og miðbær Mosfellsbæjar steinsnar frá. 

Verð kr. 229.000.000,-  Nánari upplýsingar veitir Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali í síma 698-8555 eða [email protected]

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband