28.06.2024 1285211
Kvisthagi 3
107 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
- Dagsetning skráningar: 28.06.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 19.07.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 20 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 20 daga.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
** SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SENT SAMSTUNDIS **
Eignin er skráð 130,8 fm. hjá Þjóðskrá Íslands þar af íbúð (98,3fm) og bílskúr (32,5 fm). Sérgeymsla (köld - 2,7 fm) í sameign í kjallara ásamt hitakompu og sameiginlegu þvottahús þar sem hver er með sína vél. Inngangur í stigahús er sameiginlegur með risíbúð og er sameignin öll mjög snyrtileg. Eignin samanstendur af anddyri/stigapalli, holi, eldhúsi, stofu, borðstofu, 2 svefnherbergjum (voru áður 3), baðherbergi, svölum út frá borðstofu og bílskúr.
Bílskúrinn (32,4 fm) er vinstra megin (merktur 02-0101) og er með nýlegri, rafdrifinni hurða opnun með fjarstýringu, málað gólf, rennihurðum á milli hólfa, nýlegri hurð að bakatil, glugga með opnanlegu fagi, rafmagni, hita ásamt heitu og köldu vatni.
** SMELLTU HÉR og skoðaðu EIGNINA í 3-D, þrívíðu umhverfi.**
Allar nánari upplýsingar veitir:
Salvör Davíðs, lgf., í síma 844-1421 eða á [email protected]
Bjarný Björg Arnórsdóttir, lgf., í síma 694-2526 eða á [email protected]
Nánari lýsing:
Stigahús / inngangur: Sameiginlegur með risíbúðinni. Teppalagður með nettum fataskáp (sér) á stigapalli ásamt hvítum skóskáp.
Eldhús: Bjart og fallegt með hvítri innréttingu, hvítum flísum á milli skápa, búrskáp, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþvottavél (ný), bakaraofn í vinnuhæð (nýr), span hellu borði og gluggum í tvær áttir. Opið er úr eldhúsi inn í stofu.
Stofa / borðstofa: Saman í opnu og björtu rými og þaðan farið út á svalir sem vísa beint í suður.
Hol: Miðrými íbúðinnar er með góðum, hvítum fataskápum og tengir saman öll önnur rými eignarinnar.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart með stórum hvítum fataskáp með rennihurðum.
Barnaherbergi: Rúmgott og bjart með hvítum fataskáp. Barnaherbergið var áður 2 herbergi og er því sérlega rúmgott.
Baðherbergi: Flísar gólfi og veggjum, hiti í gólfi, hvít innrétting með viðarplötu, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn. Gluggi með opnanlegu fagi.
Gólfefni íbúðar: Hvíttað parket, náttúruflísar og flísar.
Hurðar: Fallegar, hvítar yfirfelldar innihurð og eldvarnarhurð inn í íbúð.
Snyrtileg sameign. Framan við inngang íbúðarinnar er bjart og rúmgott anddyri með teppi. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sér geymsla (2,7fm). Snjóbræðsla er í gangstétt frá húsi út að sorpskýlum.
Garður: Stór og góður sameiginlegur garður og hefur eigandi útbúið huggulegan pall á bakvið bílskúrinn.
Bílskúr (32,4 fm): Stór og góð heimskeyrsla með sér bílastæðum, nýleg bílskúrshurð með rafdrifinni hurða opnun með fjarstýringu, málað gólf með niðurfalli, rennihurðum á milli hólfa, nýlegri hurð að bakatil, glugga með opnanlegu fagi. Bílskúrinn hefur verið einangraður og múraður upp (af fyrri eiganda). Heitt og kalt rennandi vatn, vaskur og rafmagn. Úr bílskúrnum er gengið út á huggulegan pall.
SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D – ÞITT EIGIÐ OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR
ENDURBÆTUR FASTEIGNAR Á SÍÐUSTU ÁRUM:
* 2024 - Blöndunartæki á baðkari/sturtu 2024
* 2023 - Efri skápar í eldhúsi og flísar á milli skápa
* 2022 - Mótor á bílskúrshurð
* 2021 - Gönguhurð í bílskúr
* 2018 - Þakpappi á bílskúr endurnýjaður af fyrri eiganda.
* 2012 - Frárennslislagnir endurnýjaðar að mestu undir plötu í íbúð á jarðhæð
* Þak á húsi endurnýjað samhliða breytingum á risi.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Salvör Davíðs, löggiltur fasteignasali í síma 844-1421 eða á netfangið [email protected]
Bjarný Björg Arnórsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 694-2526 eða á netfangið [email protected]
__________________________
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
__________________________
Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við verðmetum þína eign þér að kostnaðarlausu
__________________________
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
Ertu í fasteignahugleiðingum? Við kíkjum til þín í spjall !
Við höfum starfað við fasteignasölu samanlagt í yfir áratug.
Við leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir seljendur og kaupendur. Hjá okkur færðu frítt sölumat og upplýsingar um ferlið án allra skuldbindinga.
Hafðu samband í dag!
- Salvör Davíðs, lgf í síma 844-1421 eða á netfangið [email protected]
- Bjarný Björg, lgf í síma 694-2526 eða á netfangið [email protected]
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1285211
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 123.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 60.420.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 90.750.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 947.248
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 130.8
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 28.06.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 19.07.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 28.06.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 107
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Kvisthagi 3
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1954
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 1
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur:
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Kvisthagi
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 3
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina