Söluauglýsing: 1285136

Þórustaðir 2

605 Akureyri

Verð

Tilboð

Stærð

213.5

Fermetraverð

-

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

73.750.000

Fasteignasala

Fasteignasala Akureyrar

Símanúmer

hero

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Stórglæsilegt einbýlishús í sveitasælunni, 5-10 mín. akstur frá Akureyri.
213,5m2 einbýlishús sem hefur verið mikið uppgert, m.a. nýtt baðherbergi, ný gólfefni, ný stór hurð út á nýja u.þ.b. 100m2 steypta verönd sem er nýelg, heitur pottur og góðir skjólveggir, einstakt útsýni. 
Raflagnir hafa að mestu verið endurnýjaðar ásamt rafmagnstöflu.  Frárennslislagnir haf verið endurnýjaðar og settur upp brunnur, heita- og kaldavatnsinntök hafa einnig verið endurnýjuð.  Útidyrahurðir hafa verið endunýjaðar.  Steyptar verandir eru þrjár, vestan, sunnan og austan megin, skjólveggir á öllum veröndum.   
Gólfhiti er í öllum rýmum nema öðru baðherberginu sem ekki hefur verið endurnýjað nýlega.  
Forstofa:  Gráar flísar, fatahengi á vegg, hitastýring vegna gólfs í forstofu, hitastýring fyrir heitan pott og "blæðing" í verönd framan við húsið er þar.    
Baðherbergi:  Nýtt og glæsilegt baðherbergi er inn af forstofu með mjög stórri sturtu, stórar gráar flísar á gólfi og veggjum, hvítt vegghengt salerni, hvít innrétting, hvítur handklæðaofn.    
Herbergi við hlið baðherbergis:  Á gólfi er harðparket (hvíttuð eik). 
Eldhús og stofa mynda afar skemmtilega heild sem afar rúmgott rými og þaðan er hægt að ganga út á um 100m2 steypta verönd með góðum skjólveggjum og heitum potti, stórfenglegt útsýni yfir Eyjafjörðinn er af pallinum, ný tvöföld útidyrahurð út á pallinn, hitalögn er í öllum pallinum en um helmingur hennar tengdur eins og er. 
Stofa er mjög stór og með einstöku útsýni yfir nánast allann Eyjafjörðinn.  
Inn af eldhúsi er annars vegar búr og hins vegar þvottahús og geymsla, hvoru tveggja með sérinngangi, flotað gólf án gólfefna á þessum rýmum, í þvottahúsi er nýleg hvít innrétting með grárri borðplötu, úr þvottahúsi er gengið út á steypta stétt, þar er hitalögn. 
Elhdús er rúmgott, hvít innrétting sem er U-laga, ásamt efri og neðri skápum á gangstæðum vegg, hvítar borðplötur, keramikhelluborð, ofn og vifta sem tengd er út úr húsi. 
Inn úr stofu er annars vegar rúmgott herbergi með lausum skáp, og hins vegar gangur, þar eru fjögur svefnherbergi, öll með sams konar parketi og er á nánast öllu húsinu, þrjú herbergi eru með skápum, tvö ekki. 
Baðherbergi:  Í ágætu ástandi en hefur ekki verið endurnýjað á llra síðustu árum, rúmgóð sturta með hlöðnum vegg, baðkar, ljósar flísar á veggjum, grænar flísar á gólfi, hvít sprautulökkuð innrétting, hvít hreinlætistæki, handlaug, salerni og baðkar.   
Við enda gangs er gengið út á steypta verönd með skjólveggjum. 
Eigninni fylgir 1045 fm lóð.      
 
  • Eigninni fylgir 1045 fm lóð.      
  • við endurbætur síðustu ára voru inntök fyrir heitt og kalt vatn endurnýjuð 
  • Rafmagn að talsverðu leyti endurnýjað
  • ný rafmagnstafla
  • Frárennslilagnir út í brunn endurnýjaðar.  
  • nýr u.þ.b.100m2 steyptur sólpallur vestan við húsið

   

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  [email protected]

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband