Söluauglýsing: 1285093
Hjarðartún 12
355 Ólafsvík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Fasteignamat
- Dagsetning skráningar: 28.06.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Enn í birtingu
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 8 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir mikið endurnýjað hús á góðum stað, stutt í alla þjónustu.
Fallegt útsýni til sjávar og fjalla.
Útleigumöguleikar
Efri hæð 4-5 herbergja íbúð.
Neðri hæð 6 herbergja íbúð og bílskúr.
Endurbætur sem voru gerðar á húsinu 2019 til 2021, skipt var um alla glugga og hurðar, það var klætt að utan með bárujárni, timbri og einangrað, þakið var allt tekið í gegn sem og þakkantur og allar rennur. Húsið var drenað og skólp / pípulagnir og raflagnir endurnýjaðar. Allir veggir og loft voru heilsparslaðir og málaðir. Gólfhiti settur á neðri hæð og á efri hæð voru settir rafmagnsofnar.
Rafmagnstöflur endurnýjaðar, ljósleiðari settur í húsið, einnig voru settar nýjar heimtaugar og sístreymishitarar í húsið á hvora hæð.
Efri hæð skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi og 3-4 svefnherbergi
Forstofa er flísalögð.
Eldhús er með parket a gólfi, með nýlegri innréttingu og tækjum, helluborð, háfur og bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur við glugga.
Stofa / borðstofa er rúmgóð með glugga á tvo vegu.
Hol er með parket á gólfi og útgeng út á svalir.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, handlaug með skúffu, hár skápur, spegill á vegg og sturtuklefi.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 4 er gert ráð fyrir samkv. teikningu við hliðin á eldhúsi. Væri auðvelt að stúka af en er í dag opið með stofu.
Geymsluloft er yfir hæðinni, aðgengi út holi.
Þvottahús er flísalagt, rennihurð í holið, einnig hægt að ganga inn úr forstofu.
Neðri hæð skiptist í eldhús / stofu / borðstofu, gang, 5 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Búið er að stúka hluta af bílskúr fyrir herbergi.
Forstofa er flísalögð.
Eldhús er með nýlegri hvítri háglans innréttingu með viðartóna efri skápum. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti, bakarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Útgengi út í garð er úr eldhúsi.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, walkin sturtu og innréttingu með skáp, skúffu og handlaug.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi
Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi og fataskáp
Svefnherbergi 5 er flísalagt og stúkað úr hluta af bílskúr.
Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél/þurrkara. Stór fataskápur.
Bílskúr er skráður 21,2 m2 með bílskúrshurð. Er í dag skipt í geymslu og herbergi.
Stór og góður garður með steyptum kannti allan hringinn og staurar til staðar ef vilji er til að setja girðingu. Gott bílastæði við húsið.
Mjög vel staðsett hús þar sem stutt er í alla þjónustu s.s skóla, íþróttahús, sundlaug, veitingastaði og fl.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1285093
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 54.000.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 93.700.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 42.950.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 225.376
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 239.6
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 28.06.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar:
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 28.06.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 355
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Hjarðartún 12
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1958
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 11
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 8
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 2
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Hjarðartún
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 12
Húsnúmer eignarinnar.