Söluauglýsing: 1284929

Urðarbrunnur 82

113 Reykjavík

Verð

169.900.000

Stærð

278.2

Fermetraverð

610.712 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

152.850.000

Fasteignasala

101 Reykjavík

Símanúmer

hero

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

101 Reykjavík Fasteignasala kynnir í einkasölu: Einkar fjölskylduvænt einbýli með aukaíbúð og bílskúr í Úlfarsárdal. Skóli, leikskóli, sundlaug, bókasafn og Íþróttafélagið Fram í göngufæri. Stutt í gönguleiðir að Úlfarsfelli og að Reynisvatni og niður í Úlfarsárdal.

Lýsing eignar:
Neðri hæð samanstendur af: Forstofu, herbergi, gestasalerni, þvottahúsi, hol við stiga og bílskúr.


Forstofa, parketlögð, hvítlakkaður fataskápur, fatahengi og sérsmíðaðar skóhillur. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Svefnherbergi á vinstri hönd frá forstofu parketlagt og með útsýni að palli við hús og nærumhverfi.
Gestasalerni parketlagt, upphengt salerni og handlaug.
Þvottahús einkar rúmgott, flísalagt gólf og með útgengi út að garði austan megin. Gott borðpláss, vaskur og skápar undir borði. Rúmgóður skápur á vegg til móts við innréttingu. Komin lagnaleið út í garð fyrir heitan pott.
Hol er við stiga neðri hæðar. Innangengt var áður úr holi að aukaíbúð en einfalt að opna aftur á milli, en léttur veggur aðskilur rými.

Efri hæð samanstendur af: Stofu, borðstofu, sjónvarpsrými, eldhúsi, svölum, baðherbergi og þremur svefnherbergjum.

Stigi
upp á efri hæð er teppalagður, fallegt viðarhandrið í bland við gler á efri hæð, gefur hlýleika í rými.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi mjög rúmgott parketlagt opið hlýlegt rými. Hátt til lofts og innbyggð lýsing. Stórir gluggar með útsýni að borg og nærumhverfi. Útgengi er að svölum frá borðstofu. Sjónvarpsrými er inn af stofu.
Eldhús, hvítlökkuð sérsmíðuð innrétting með miklu skápa, skúffuplássi, stórum búrskáp og rúmgóðum tækjaskáp. Viðarborðplata, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél og ofn í vinnuhæð.
Eyja með viðarborðplötu og helluborði ásamt skápum undir eyju að hluta. Við enda eyju er gott pláss fyrir barstóla. 
Setubekkur er í framhaldi af innréttingu í eldhúsi og er hluti af innréttingu, geymslupláss er undir setubekk. 
Svalir efri hæðar eru rúmgóðar og vísa til vesturs. Útgengi er frá borðstofu að svölum.

Hjónaherbergi til vinstri er komið er inn á svefnherbergisgang, parketlagt, bjart og með stórum hvítlökkuðum fataskápum.
Svefnherbergi í enda gangs á vinstri hönd, rúmgott bjart, parketlagt, skápur og með glugga á tvo vegu.
Svefnherbergi í enda gangs á hægri hönd einkar rúmgott, parketlagt, fataskápur, speglahurðar eru á skáp.
Baðherbergi, flísalagt gólf, baðinnrétting með skúffum, viðarborði og handlaug, baðskápur þar við hliðina á. Upphengt salerni, baðkar, og innangent í rúmgóða flísalagða sturtu.

Aukaíbúð: Samanstendur af: Inngangi, eitt svefnherbergi, opið rými stofu og eldhúss ásamt baðherbergi.
Komið er inn í flísalagðan inngangang. 
Svefnherbergi parketlagt og rúmgott ásamt fataskáp.
Eldhús/stofa opið parketlagt bjart rými gluggar vísa að garði eignar og nærumhverfi.
Eldhúsinnrétting er rúmgóð með góðu borðplássi, neðri skápum og skúffum. Helluborð, ofn í vinnuhæð, skápur fyrir örbylgjuofn fyrir ofan.
Baðherbergi flísalagt gólf og veggir, sturtuklefi og upphengt salerni. Baðinnrétting, neðri skúffur og skápar góður baðskápur við hlið innréttingar. Hvít borðplata við vask og spegill þar fyrir ofan ásamt lýsingu.Tenging er fyrir þvottavél inn á baðherbergi.

Bílskúr 30,7 fm flísalagt gólf, niðurfalli, tenging er fyrir vask, heitt og kalt vatn. Hátt er til lofts og bílskúrshurð með sjálvirkum hurðaopnara. 
Geymsla er í enda rýmis bílskúrs.


Gott aðgengi er að húseign upphitað bílaplan að framan fyrir tvo bíla.
Afgirt/opið gott svæði að framanverðu við inngang húss, túnþökur og pallagólf að hluta innan girðingar.
Sunnan megin við húseign er nýsteyptur veggur á lóðarmörkum og hellulagt svæði að hluta þar sem gengið er inn að aukaíbúð. Lóð í kringum hús er að öðru leiti grasi lögð.


Gólfhiti er í húseign.
Harðparkert frá Birgisson eru á parktlögðum rýmum eignar.
Geymsluloft um 25 fm er undir súð liggur yfir hjónaherbergi og baðherbergi efri hæðar. 
Nýr þakkantur á húsi 2024.
Eign er tilbúinn til afhendingar við kaupsamning.

Góð, einkar hlýleg og fjölskylduvæn eign þaðan sem öll helsta þjónusta og afþreying er í næsta nágrenni og stutt út í náttúruna.
Sjón er sögu ríkari.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 [email protected] og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 [email protected]
Bókið skoðun á [email protected] eða í síma 771-5501


Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 77.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv. 






 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband