Söluauglýsing: 1284814

Rjúpnahæð 15

210 Garðabær

Verð

245.000.000

Stærð

259.5

Fermetraverð

944.123 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

179.700.000

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

Símanúmer

hero

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasalan TORG kynnir: Glæsilegt og vandað einbýlishús með frábæru útsýni við Rjúpnahæð 15 í Garðabæ. Um er að ræða eign sem er skráð skv fmr 259,5fm og þar af er bílskúr 37,8fm. Arkitekt hússins er Kristinn Ragnarsson. Það sem einkennir húsið helst er glæsileg aðkoma með stóru bílaplani með hitaílögnum, steyptum veggjum og veröndum úr harðvið. Glæsileg og vönduð lýsing bæði utan og innandyra, heitur pottur, gólfsíðir gluggar, hurðar í yfirstærð á efri hæð, allar innréttingar eru frá GKS og gólfefni eru flísar og gegnheilt parket frá Birgison. Frábært útsýni og eftirsótt staðsetning þar sem stutt er í leikskóla, skóla og íþróttaaðstöðu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]
Eignin skiptist eftirfarandi: Neðri hæð: Forstofa, þvottahús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi + skrifstofa (hægt að nota sem lítið svefnherbergi), sjónvarpshol og bílskúr.
Efri hæð: stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi og hjónaherbergi með fataherbergi innaf.
Nánari lýsing: Forstofa:
komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Sjónvarpshol: frá forstofu er komið inná sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Þvottaherbergi: þvottaherbergi er vel útbúið með innréttingu með vaski, flísum á gólfi og útgengi út í garð.
Svefnherbergi: svefnherbergin á neðri hæð eru þrjú og að auki er eitt sem notað er sem skrifstofa en hægt væri að nota sem lítið svefnherbergi. Parket er á gólfum og fataskápar í öllum herbergjum fyrir utan skrifstofuna.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, stórri sturtu með glerskilrúmi og fallegri innréttingu. Handklæðaofn og opnanlegur gluggi. Frá baðherberginu er útgengt út í garð og í heitan pott.
Efri hæð: Gengið er upp parketlagðan stiga uppá efri hæð hússins. Stórir gluggar eru í uppgöngunni með glæsilegu útsýni og hleypa góðri birtu inn.
Eldhús: eldhús eignarinnar er bjart og rúmgott með hvítri innréttingu með góðu skápalássi og stórri eyju sem hægt er að sitja við. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp, tveir ofnar eru í vinnuhæð og uppþvottavél er innbyggð.  Stækkað spanhelluborð er í eyjunni og á borðum er fallegt hitaþolið efni. Útgengt er út á stórar svalir frá eldhúsi með glæsilegu útsýni.
Borðstofa: við hlið eldhúss er rúmgóð borðstofa með parketi á gólfi.
Stofa: samliggjandi borðstofu er stofan einnig með parketi á gólfi og fallegri lýsingu í lofti.
Hjónaherbergi: á efri hæðinni er hjónaherbergi með rúmgóðu fataherbergi innaf með góðum innréttingum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: baðherbergið á efri hæð er glæsilegt og bæði með baðkari og sturtu. Innrétting með góðu skápaplássi, glerskilrúm er fyrir sturtu, falleg lýsing og innbyggð blöndunartæki ásamt opnanlegum glugga.
Bílskúr: Innangengt er í bílskúrinn sem er skráður 37,8 fm. Flísar eru á gólfi, gluggar og rafmagnshurðaopnari.
Niðurlag: Þetta er virkilega fallegt og vel skipulagt fjölskylduhús með frábæru útsýni og á góðum stað í Garðabæ þar sem leikskóli, skóli og íþróttaaðstaða er í göngufæri. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]
 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband