Söluauglýsing: 1284766
Hallbjarnarstaðir 1
701 Egilsstaðir
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
![hero](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/1.jpg)
- Dagsetning skráningar: 27.06.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Enn í birtingu
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 4 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Frá Egilsstöðum er ekið að Hallbjarnarstöðum um Upphéraðsveg nr. 931 að Skiðudals- og Breiðdalsveg nr. 95 og þar að Hallbjarnarstöðum. Ýtið hér fyrir staðsetningu.
BÓKIÐ SKOÐUN Í SÍMA 483-5800 EÐA [email protected]
Skipulag eignar: Efri hæð: Stofa, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Millihæð: Anddyri og stigi á neðri- og efri hæð. Neðri hæð: Búr, tvö svefnherbergi, gestasalerni, þvottahús og geymsla.
Nánari lýsing:
Anddyri er á millihæð, með flísum á gólfi og stiga upp á efri hæð.
Efri hæð:
Gangur sem leiðir fyrst inn á baðherbergi og svo inn í sameiginlegt rými með eldhúsi, stofu og svefnherbergi þar inn af.
Eldhús, Brúnásfrontar á eldhúsinnréttingu, helluborð, háfur, ofn í vinnuhæð, uppþvottavél fylgir með. Borðkrókur.
Stofa er inn af eldhúsi. Vegghengdur glerskápur fylgir með.
Tvö svefnherbergi eru inn af stofu/eldhúsi. Hjónaherbergi er með tvöföldum fataskáp og minna svefnherbergi þar við hliðina á.
Baðherbergi er með flísalögðum sturtuklefa og nýlegum blöndunartækjum. Standandi salerni og opin vaskinnrétting. Flísar á gólfi.
Á gólfum í eldhúsi, stofu og herbergjum er parket.
Neðri hæð:
Frá anddyri er nýteppalagður stigi niður á neðri hæð.
Undir stiga er kalt búr, málað gólf og gott hillupláss.
Gestasalerni, þar er komið salerni, sturtubotn er til staðar, á eftir að tengja sturtu og klára frágang. Lagnir eru utanáliggjandi.
Inn gang er málað gólf með lausum teppadregli. Rafmagnstafla er á gangi.
Geymsla, veggir, loft og gólf ófrágengið. Lagnir eru utanáliggjandi.
Tvö svefnherbergi, þar er nýlegt harðparket á gólfi og nýjar loftaplötur. Herbergi er inn af herbergi. Tvö rúm í innra herbergi og fylgja með. Sprunga í rúðu.
Þvottahús, pláss fyrir tvær vélar á palli. Skolvaskur, hitakútur. Steypt gólf. Lagnir eru utanáliggjandi. Veggfast vinnuborð.
Frá þvottahúsi er gengið inn í geymslu/bílskúr. Rýmið er ekki upphitað eins og er - þar er rafmagnsofn. Steypt og málað gólf. Veggir eru einangraðir að hluta. Á eftir að einangra loft. Rafmagn er til staðar. Útgengt.
Ófrágengin utanhússklæðning meðfram tveimur gluggum.
Einbýlishúsið er steypt og er á tveimur hæðum. Húsið er klætt að utan með standandi bárujárnsklæðningu. Þak er klætt bárujárni. Gluggar eru timburgluggar. Við húsið til suðurs er steypt verönd.
Malarvegur liggur að húsunum frá þjóðvegi, malarbílaplan er við húsið. Sveitarfélag/Vegagerð sjá um snjómokstur á veginum að húsunum við Hallbjarnarstaði. Sorphirða er heim að bæ. Rotþró er staðsett framan við húsið hinu megin við afleggjaran.
Malarplan/púði er fyrir neðan hús er auka bílastæði.
Útihúsið er samtals 420,2 m². Þar er hlaða með malargólfi sem hefur verið notað sem verkstæði að hluta. Hænsnakofi og geymslur. Gott að skoða vel ástand á útihúsum.
Útihúsið samanstendur af eftirfarandi skráðum eignum hjá HMS: Hlöðu, haughúsi, fjósi, geymslu, fjárhúsi, mjólkurhúsi og kálfahúsi.
Landið/lóðin er gróin 14.591,2 m², landið hefur að hluta til verið slegið til beitar. Lóðin er afgirt við íbúðarhúsið með timburgirðingu, þar er að finna kartöflugarð, rabbabara, matjurtarbeð og rifsberjarunna.
Sjá í landeignaskrá landnúmer 226817 https://geo.fasteignaskra.is/landeignaskra/226817
Skráning eignarinnar hjá HMS:
Stærð: Einbýli 151 m². Hlaða 74.2 m². Haughús 26.4 m². Fjós 46.3 m². Geymsla 13.6 m². Fjárhús 40.6 m². Mjólkurhús 15.0 m². Kálfahús 32.1 m². Geymsla 21,0 m². Heildarstærð alls 420.2 m².
Brunabótamat samtals: 66.620.000 kr.
Fasteignamat samtals: 19.768.000 kr. Fasteignamat 2025: 21.215.000 kr.
Byggingarár: Einbýli 1938. Geymsla/bílskúr við einbýlishús 1981.Útihús: Hlaða 1950. Haughús, fjós, fjárhús, mjólkurhús og kálfahús 1961. Geymsla 1964.
Byggingarefni: Steypa
Landeignanúmer: 226817. Stærð landeignar: 14.591,2 m²
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - [email protected]
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – [email protected]
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - [email protected]
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala
Ljósmyndir
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/1.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/2.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/3.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/4.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/5.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/6.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/7.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/8.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/9.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/10.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/11.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/12.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/13.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/14.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/15.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/16.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/17.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/18.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/19.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/20.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/21.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/22.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/23.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/24.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/25.jpg)
![](https://fasti-images.ams3.digitaloceanspaces.com/1284/766/images/26.jpg)
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1284766
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 39.500.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 63.810.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 19.768.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 94.003
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 420.2
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 27.06.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar:
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 27.06.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 701
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Hallbjarnarstaðir 1
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1938
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 5
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 4
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 2
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 0
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: HALLBJARNARSTAÐIR
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 1
Húsnúmer eignarinnar.