Söluauglýsing: 1284349

Kaldakinn 25

220 Hafnarfjörður

Verð

66.900.000

Stærð

93.1

Fermetraverð

718.582 kr. / m²

Tegund

Hæðir

Fasteignamat

66.950.000

Fasteignasala

Hraunhamar Fasteignasala

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 4 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

**Afhending við kaupsamning.**

Hraunhamar og Ársæll Ó Steinmóðsson löggiltur fasteignasali s:896-6076 kynna í einkasölu vel skipulagða fjögurra herbergja neðri sérhæð með sérinngangi á rólegum og fallegum stað að Köldukinn 25 í suðurbæ Hafnarfjarðar. Samkvæmt birtum fm er íbúðin 93,1 fm. og í kjallara er sameiginleg geymsla með efri hæðinni og er hlutur íbúðarinnar í geymslunni ca 16 fm og eru þeir ekki inni í birtum fm. Fyrir framan íbúðina er hellulagður sérafnotaflötur. Garður er gróinn. Geymsla undir tröppum fylgir íbúðinni. Opið svæði er við suðurenda lóðarinnar. 


Samkvæmt upplýsingum frá seljanda var húsið múrviðgert og málað að utan 2022.

Mjög góð staðsetning í suðurbæ Hafnarfjarðar þ.s tjörnin og miðbær Hafnarfjarðar í stuttu göngufæri. Grunn og leikskóli ásamt Suðurbæjarlaug eru í þægilegu göngufæri.


Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, stofa, eldhús með borðkróki, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sameigninlegt þvottahús og sameignleg geymsla. Gólfefni eru parket, dúkur og flisar.  

Nánari lýsing: 
Forstofa/hol eru með flísar á gólfi við inngang og parketi. Gott fatahengi.
Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi
Eldhús er með ljósri innréttingu og góðum borðkrók. Dúkur á gólfi. 
Hjónaherbergi er með harðparketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergin  eru með parketi á gólfi og er annað þeirra með fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Viðarlituð innrétting með handlaug, upph.wc og sturtuklefi. Gluggi með opnanlegu fagi.
Geymslur eru undir tröppum og í sameiginleg geymsla í kjallara.

Innangengt er í sameiginlegt þvottahús. Í kjallara er stór geymsla sem er í dag opið rými og skiptist jafn á milli hæða.

Allar nánari upplýsingar veitir Ársæll Ó. Steinmóðsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6076 eða sendið tölvupóst á netfangið [email protected] 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
5. Umsýslugjald til fasteignasölu kr.68.200.-m.vsk.

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983 og fagnar því 41 ára afmæli á árinu 2024. 
Hraunhamar, í fararbroddi í 41 ár. – Hraunhamar.is 

Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband