Söluauglýsing: 1283568

Seiðakvísl 33

110 Reykjavík

Verð

179.000.000

Stærð

236.3

Fermetraverð

757.512 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

146.700.000

Fasteignasala

Domusnova

Símanúmer

hero

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Domusnova fasteignasala og Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali kynna: Einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum innst í lokuðum botnlanga við Seiðakvísl. Vel gróinn og snyrtileg lóð sem liggur að opnu svæði. Stutt í Elliðarárdalinn og góðar gönguleiðir.
Húsið skiptist í anddyri, snyrtingu, eldhús, borðstofu og stofu. Á herbergisgangi eru þrjú  góð svefnherbergi og stórt baðherbergi.  Inn af eldhúsi er þvottahús, úr þvottahúsi er innangengt í tvöfaldan bílskúr. Inn af bílskúr er búið að gera stórt herbergi sem einnig er með hurð út á pall. Undir herbergi í bílskúr er gott 52,3 fm geymslurými sem gengið er í úr herbergi inn af bílskúr. Möguleiki væri að gera glugga á rými undir bílskúr. Lofthæð þar er c.a 215-220 cm.
 
Húsið er skráð 236,3 fm. Þar af er bílskúr 52,3 fm  skv.Þjóðskrá Íslands. 
Að auki er 52 fm óskráð rými undir bílskúr sem nýta má sem geymslurými eða hobbýherbergi. 


Gildandi fasteignamat 2024 er 146.700.000.-  Fyrirhugað fasteignamat 2025 er 157.600.000.-


·       Góð staðsetning á húsi innst í botnlanga.
·       Bjart stofurými með góðri lofthæð.
·       Arinn í stofu, einnig er útiarinn.
·       Vel gróinn og skjólsæll garður.


---- EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA -----

Nánari uppl veitir:  Sölvi Sævarsson löggilturfasteignasali. Sími 618-0064 eða [email protected].

Nánari lýsing:
Anddyri – Rúmgott anddyri með sérsmíðuðum fataskáp úr mahogny. Flísar á gólfi.
Gangur – Bjartur gangur með góðri lofthæð og gluggum við loft sem gefa góða birtu inn í ganginn.
Herbergi 1 – Við hlið anddyris með parket á gólfi, er í dag nýtt sem skrifstofa (ekki eru myndir af herbergi í auglýsingu)
Herbergi 2 – Rúmgott herbergi með góðri lothæð og gluggum á tvær hliðar. Fataskápur úr mahogny og parketi á gólfi.
Hjónaherbergi – Bjart með góðri lofthæð. Fataskápar úr mahogny og parket á gólfi.
Baðherbergi – Stórt baðherbergi með vönduðum vegg- og gólfflísum. Baðkar og sturtuklefi á baði, ljós baðinnrétting með tveimur vöskum og efri skápum þar við. Upphengt salerni og ofanljós á baðherbergi gefur góða birtu inn í rýmið.
Snyrting – Flísar á gólfi, vaskur á vegg og spegill við vask.
Stofa/ Borðstofa – Stofurými er gott bjart rými með góðri lofthæð og hurð út á sólpall í suður. Viðarþiljur og innfelld halogenlýsing í lofti. Ljósar flísar á stofurými og arinn í stofu, einnig er útiarinn á sólpalli við hurð út af borstofu. Borstofa er ágætlega stór  einnig með góðri lofthæð og innfelldri lýsingu. Parket á borðstofu. Út af borðstofu eru einnig sólpallur í suður. Vel gróinn garður sem snýr í suður og er einstaklega skjólgóður.
Eldhús – eldhúsrými með mahogny innréttingu og borðkrók. Gert er ráð fyrir tvöfaldum ískkáp í innréttingu. Góð lofthæð í eldhúsi með hvítum viðarþiljum og parket á gólfi. Inn af eldhúsi er þvottahús með innréttingu og hurð inn í bílskúr.
Innréttingar og gólfefni: Eldhúsinnrétting og fataskápar eru sérsmíðaðar úr mahogny. Parket er úr mahognyvið og er parket á flestum rýmum að undanskildum votrýmum og stofu en þar eru flísar. Innihurðar eru hvítar og voru endurnýjaðar fyrir fáeinum árum.
Bílskúr: Tvöfaldur bílskúr með tveimur hurðum. Inn af bílskúr er búið að gera herbergi með hurð inn í bílskúr og einnig er hurð út á sólpall. Herbergið er með fataskáp og harðparket á gólfi. Vaskur er í herbergi í lítilli innréttingu. Úr herbergi er lúga niður í kjallararými sem möguleiki væri að setja á glugga. Gott geymslurými er í kjallara sem er óskráð 52,3 fm rými sem nýta má á einn eða annan hátt. Einnig er got gat í gólfi í bílskúr sem hægt væri að koma fyrir stiga niður í geymslurými.
Aðkoma að húsi er hellulögð með snjóbræðslu og er innkeyrsla í bílageymslu einnig með hitalögn.
Nánasta umhverfi: Stutt í skóla og leikskóla, stutt í Elliðarárdalinn og góðar göngu- og hjólaleiðir. 

Nánari upplýsingar veita:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða [email protected] 

 – eða skrifstofa / s.527-1717 / [email protected] 
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 69.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.
 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband