10.06.2024 1277989

Hringbraut 47

101 Reykjavík

hero

Verð

59.900.000

Stærð

72.1

Fermetraverð

830.791 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

55.750.000

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 17 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

LIND fasteignasala kynnir fallega og snyrtilega 2-3 herbergja íbúð á 1.hæð við Hringbraut 47 í 101 Reykjavík með útgengi út á svalir til vesturs. Eigninni fylgir herbergi í risi með aðgengi að salerni. Samkvæmt FMR er íbúð á hæð 61,5 m2 , íbúðarherbergi í risi 4,9 m2 ásamt 5,7 m2 geymlu. Samtals 72,1 m2. 

Bílastæði eru á bak við húsið og er ekið inn á bílastæði frá Furumel. Inngangur í kjallara er frá bílastæði og eru bjöllur þar einnig.  Inngangur er bæði Furumelsmegin og Hringbrautarmegin. Stigagangur er dúklagður með slitsterkum linoleum dúk. Garður er sameiginlegur. 

Góð staðsetning skammt frá Háskóla íslands og Þjóðarbókhlöðunni. Miðbær Reykjavíkur er í þægilegu göngufæri. Sutt er út á Ægisíðu, sundlaug vesturbæjar og út á Granda svo eitthvað sé nefnt. 



Nánari lýsing.
Forstofa með flísalögðu gólfi og innbyggðum fataskáp ásamt hvítum skóskáp.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi. Baðkar með sturtuaðstöðu. Stór hvítur handklæðaskápur. Gler vaskur og opnanlegur gluggi.
Eldhúsið er með innréttingu með efri og neðri skápum og flísum á milli skápa. , flísalagt gólf.  Nýlegt  Siemens span helluborð og bakaraofn. Nýleg blöndunartæki.
Svefnherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og innbyggðum hvítum fataskáp.
Stofan er rúmgóð með gluggum á tvo vegu og útgengi út á svalir til vesturs.
Herbergi  í risi með dúk á gólfi og opnanlegum glugga.

Húseignin var endursteinuð 1997.
Skolplögn var endurnýjuð 2010.
Raflagnir endurnýjaðar í íbúð.
Þak yfirfarið nýlega
Nýir gluggar í allri íbúðinni og ný svalahurð


Sér geymsla  er í sameign með máluðu gólfi og hillum. Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sínar vélar. Sameiginleg hjólageymsla. Í risi er sameiginleg salernisaðstaða. Húsgjöld eignarinnar á mánuði eru 22.086 kr. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected]

 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband