10.06.2024 1277979

Fagrihjalli 3

200 Kópavogur

hero

Verð

187.300.000

Stærð

172.7

Fermetraverð

1.084.540 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

103.650.000

Fasteignasala

Domusnova

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 17 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

DOMUSNOVA KYNNIR * EINBÝLISHÚS MEÐ TVEIMUR ÍBÚÐUM Í SUÐURHLÍÐUM KÓPAVOGS***

Mjög gott einbýlishús með aukaíbúð við Fagrihjalli 3, 200 Kópavogi.  Eignin er skráð á tvö fastanúmer, eitt fyrir hvora íbúð F206-0281 og F222-4795.

Birt stærð heildareignarinnar skv  HMS er 233,2fm., þar af bílskúr 27,0fm. og aukaíbúð á neðri hæð 60,5fm.
Aðalíbúðin samanstendur af forstofu, opnu eldhúsi, stofu, borðstofu, þremur svefnherbergjum, gestasnyrtingu, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla, ásamt innbyggðum bílskúr.
Aukaíbúðin er uppgerð að öllu leyti með sér-inngangi og skiptist m.a. í forstofa, opið eldhús við stofu/borðstofu með útgengi út í garð með sólpalli, svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi.

Mjög fallegur og gróinn garður sem snýr til suðurs með sólpalli við aukaíbúð, stórar svalir á aðalíbúð með fallegu útsýni til suðurs.  Rúmgott bílastæði við húsið.

Nánari lýsing - Aðalíbúð:
íbúðin er á 2 hæðum, 172,7fm, mjög hátt til lofts í stofu og borðstofu.
Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Stofa og borðstofa samliggjandi í lopnu rými með útgengi á stórar suður svalir.  Mikið útsýni til suðurs og til sjávar.
Eldhús mjög rúmgott og með góðum innréttingum og tækjum.  Gluggi í eldhúsi.
Gestasnyrting flísalögð og með glugga.
Svefnherbergin eru þrjú og öll rúmgóð með skápum.  Parket á gólfum.
Baðherbergið er flísalagt, með snyrtilegri innréttingu.  Gluggi á baði.
Þvottahús er rúmgott og flísalagt.
Garður í suður.   
Stór bílskúr 27fm með heitu/köldu vatni, rafmagni, niðurfalli, sér inngönguhurð, stórum glugga með flottu suður útsýni alveg út á sjó og ekki innangengur frá húsi.

Aukaíbúð á sér fastanúmeri: 
Nýlega uppgerð 2ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli í suðurhlíðum Kópavogs. Parket og flísar á gólfum. Sérinngangur, sólpallur, suðurgarður, einkabílastæði.  Íbúðin er í útleigu í dag fyrir kr. 280.000,- á mánuði.
Glæsileg 2ja herbergja íbúð á neðri hæð í fallegu tvíbýli á frábærum stað í suðurhlíðum Kópavogs. Íbúðin er nýlega endurnýjuð á fallegan og vandaðan máta þar sem allt var endurnýjað, t.a.m. nýtt eldhús, nýtt baðherbergi, ný gólfefni, nýjar hurðir, tenglar, rofar, ljós, gardínur, ofl. Útsýni úr gluggum til suðurs út á fallegan suðurgarðinn. Sólpallur fyrir framan íbúð. Garðurinn er sameiginlegur. Sérmerkt einkabílastæði fylgir íbúðinni. Gengið er af götuhæð niður steyptan stiga meðfram húsi, og á neðri hæðinni er sér inngangur fyrir íbúðina og stór garður sem snýr í suður. Birt stærð íbúðar er 60,5 fermetrar.
Forstofa: Forstofan er flísalögð
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með gólfhita, handklæðaofni, upphengdu salerni, og flísalagðri sturtu. Allt nýlega uppgert.
Geymsla/þvottaherbergi: Flísalagt rými, tengi fyrir þvottavél/þurrkara. 
Svefnherbergi: parketlagt svefnherbergi, innsmíðaður fataskápur, gluggi í suður. 
Stofa: parketlögð, gluggar á 2 hliðar er snúa í suður og vestur, sameiginlegt rými með eldhúsi
Eldhús: flísar lagðar meðfram eldhúsinnréttingu, eitt rými með stofu. Nýleg eldhúsinnrétting og öll tæki, Siemens uppþvottavél, innbygður örbylgjuofn.

Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / [email protected]
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / [email protected]
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899 0720 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband