10.06.2024 1277884

Flétturimi 9

112 Reykjavík

hero

Verð

66.900.000

Stærð

109.7

Fermetraverð

609.845 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

64.550.000

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 1 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

FASTEIGNASALAN TORG KYNNIR Í SÖLU: 109,7 fm, fjögurra herbergja íbúð á þriðju og efstu hæð, með stæði í bílakjallara.  Íbúðin skiptist í anddyrisgang, alrými með stofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Útgengt er á rúmgóðar svalir með fallegu útsýni, frá stofu. Stæði í bílakjallara. Sér geymsla og sameiginleg vagna- og hjólageymsla í sameign.  Afhending getur verið stuttu eftir kaupsamning. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, búðir og samgöngur.
Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða [email protected].


Nánari lýsing: Eignin er skráð 109,7 fm og skiptist í íbúð 85,5 fm, geymsla 8,8 fm, stæði í bílakjallara 15,4 fm.
Komið er inn á anddyrisgang sem tengir rými íbúðar, þrjú svefnherbergi, öll með góðu skápaplássi. Eldhús var fært fram í stofu og er í opnu og björtu alrými með aukinni lofthæð. Útgengt á svalir til vesturs frá stofu, með glæsilegu útsýni. Baðherbergi er með dökkri innréttingu, efri speglaskáp og lokaðri sturtu. Fallegar parketflísar eru á gólfi og upp yfir klósettkassann. Upphengt klósett. Þvottahús er innan íbúðar, með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Parket er á allri íbúð, fyrir utan votrými.
Eignin hefur verið endurnýjuð að hluta, baðherbergi, parket og eldhús að hluta árið 2020 og hús var málað að utan 2017. Sameign var tekin í gegn 2024, málað og skipt um teppi. Hleðslustöð er fyrir utan hús og hægt er að tengja hleðslustöð í stæði í bílageymslu.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband