10.06.2024 1277785

Lindargata 39

101 Reykjavík

hero

Verð

117.000.000

Stærð

90.2

Fermetraverð

1.297.118 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

85.800.000

Fasteignasala

Fasteignamarkaðurinn

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 24 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu glæsilega 3ja herbergja 90,2 fermetra útsýnisíbúð á 8. hæð með suðursvölum og sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu í vönduðu og vel staðsettu fjölbýlishúsi með tveimur lyftum við Lindargötu 39 í Reykjavík.   Stutt er í alla þjónustu, verslanir, veitingahús og mannlíf miðborgarinnar. 

Gólfhitalagnir eru í íbúðinni og er hún öll innréttuð með ljósum viði, eikarinnréttingum, innihurðum úr eik og eikarparketi.  Gólfsíðir gluggar í stofu og herbergjum og virkilega fallegt útsýni til fjalla í austri, að Hallgrímskirkju og yfir miðbæinn. Aukin lofthæð er í íbúðinni.  Sameign er öll virkilega fallega innréttuð og afar vel umgengin.


Lýsing eignar:
Forstofa, parketlögð og með innbyggðum fataskápum.
Stofa, parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar svalir til suðurs.
Eldhús, parketlagt og með bjart með fallegum hornglugga til austurs og fallegu útsýni.  Vönduð eikarinnrétting með kvartsteini á borðum og innbyggðri uppþvottavél. Borðaðstaða við glugga.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott og með innbyggðum fataskápum á heilum vegg.
Barnaherbergi, parketlagt.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting með kvartsteini á borði, speglaskápar, handklæðaofn og baðkar með sturtugleri.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf, vaskur og lítil innrétting.

Í kjallara hússins eru:
Sér bílastæði vel staðsett við inngang í lyftuhús í efri bílakjallara. Búið er að tengja fyrir rafhleðslustöð í bílastæði.
Sérgeymsla, 7,4 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla. 

Húsið er einangrað og klætt að utan og er í góðu ástandi.

Staðsetning eignarinnar
er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í iðandi mannlíf, veitingahús, afþreyingu, verslanir og þjónustu.

Allar nánar upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 5704500 eða á netfanginu [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband