10.06.2024 1277684

Ljósheimar 6

104 Reykjavík

hero

Verð

74.900.000

Stærð

106.5

Fermetraverð

703.286 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

68.800.000

Fasteignasala

Eignamiðlun

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 10 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Eignamiðlun kynnir:

Björt og vel skipulögð fjögurra herbergja 106,5 m2 útsýnisíbúð á 8. hæð við Ljósheima 6 í Reykjavík. Gluggar á þrjá vegu í íbúðinni. Eignin er í góðu fjölbýlishúsi sem hefur fengið gott viðhald, er klætt að utan með viðhaldslítilli klæðningu. Tvennar svalir og góð sér geymsla tilheyrir eigninni sem er á 9. hæð hússins. Frábær staðsetning og mikið útsýni. 

BÓKIÐ SKOÐUN HJÁ: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða [email protected]

Eignin skiptist í anddyri, eldhús, gang, stofu, borðstofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Einnig er sameiginlegt þvottahús í kjallara með mjög fínum vélum, geymsla og svalir á 9. hæð. Lyfta er í húsinu. 

Náttúrusteinn er á gólfi í forstofu og eldhúsi, harðparket á gólfi í stofu, gangi og svefnherbergjum og flísar á baði. 
Komið er inn í gott anddyri. Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, bakarofni, keramik helluborði, háfi yfir úr burstuðu stáli. Hillur fyrir ofan neðriskápa með innfelldri halogenlýsingu. Tengi er fyrir þvottavél í eldhúsi með skáphurð fyrir. Rúmgóður borðkrókur í eldhúsi. Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð og er þaðan útgengi á svalir í vestur með mögnuðu útsýni. Baðherbergi hefur verið endurnýjað, það er flísalagt í hólf með upphengdu salerni, góðri baðinnréttingu og baðkari með sturtu yfir. Fataskápur er á gangi. Svefnherbergin eru þrjú, hjónaherbergi er rúmgott með nýlegu harðparketi á gólfi, stórum fataskáp og er útgengi á svalir í suðvestur. Tvö lítil barnaherbergi sem búið er að breyta í eitt stórt, auðvelt að setja upp vegg til að hafa tvö barnaherbergi. Uppi á næstu hæð, þeirri efstu er góð geymsla með glugga auk þess sem þar eru sameiginlegar svalir. 

Um er að ræða bjarta og fallega fjögurra herbergja útsýnisíbúð á 8. hæð í góðu fjölbýli við Ljósheima í Reykjavík. Eignin er afar miðsvæðis, örstutt í alla helstu þjónustu, leik-, grunn- og menntaskóla, Laugardalinn ofl. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband