10.06.2024 1277642

Furugrund 56

200 Kópavogur

hero

Verð

69.900.000

Stærð

92.8

Fermetraverð

753.233 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

58.800.000

Fasteignasala

RE/MAX

Símanúmer



Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

RE/MAX ásamt Gylfa Jens og Guðbjörgu Helgu löggiltum fasteignasölum kynna mikið endurnýjaða endaíbúð að FURUGRUND 56, 200 Kópavogi
Mjög björt, vel skipulögð og nær algerlega endurnýjuð 3ja herbergja endaíbúð á 1. hæð með suðvestursvölum í fjölbýlishúsi með góða viðhaldssögu. Skráð heildarstærð eignar hjá Fasteignaskrá er 87,8 fm en auk þess er óskráð geymsla í kjallara sem er um 5 fm er utan fermetratölu og því er heildarstærð meiri eða um 92,8 fm. Frábær staðsetning við Fossvogsdalinn Kópavogsmegin. Leikskóli, skóli og íþróttavellir í nærumhverfi auk þess sem stutt er í verslanir og aðra þjónustu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir. 

      **SÆKTU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST HÉR**

      **SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR**

Skipulag eignar:
Stofa/borðstofa, eldhús, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innan íbúðar, forstofa, gangur. Sérgeymsla í kjallara (utan fm.tölu). 
 
Nánari lýsing eignar:
Gluggar til þriggja átta og því einstaklega björt. Quickstep harðparket með mikið þol á gólfum nema á votasvæðum eru flísar.
Myndavéladyrasími með wifi og tengdur við síma. Öll ljós eru tengd við snjallkerfi og með dimmer.
Forstofa: Nýr hvítur forstofuskápur er í forstofu og flísar við hurð sem er eldvarnarhurð.
Gangur: Tengir saman öll rými eignarinnar. 
Stofa/borðstofa: Er mjög björt með gluggum til tveggja átta þar sem þetta er endaíbúð. Útgengi á vestursvalir með lausum viðarflísum á gólfi. 
Eldhús: Hvít og svört  innrétting og svört borðplata. Borðkrókur innst í eldhúsi við glugga, og eru svalir þar framan við. Tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp. Samsung innbyggður bakaraofn og örbylgjuofn, keramik helluborð og gufugleypir. Svartur vaskur og blöndunartæki. 2020 var endurnýjuð innrétting og tæki.
Herbergi 1: Rúmgott með gluggum til tveggja átta. Laus fataskápur með rennihurðum fylgir.
Herbergi 2: Ágætt herbergi sem getur nýst vel sem barnaherbergi eða vinnuherbergi. Fataskápur fylgir. 
Baðherbergi: Mjög rúmgott og algerlega endurnýjað, lagnir að stofnlögn.  Flísalagt í hólf og gólf. Upphengt salerni, Baðkar með sturtuaðstöðu. Svört innrétting undir handlaug og hár skápur. Handlaug með borðplássi. Spegill með innfelldri lýsnigu. Loft tekið niður með innfelldri snjalllýsingu.  Króm handklæðaofn.  Baðherbergi var stækkað í þessari endurnýjun. Opnanlegur gluggi. 
Þvottaherbergi: Er innan íbúðar og er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vaski og hvitri innréttingu. 
Geymsla: Sérgeymsla um 5 fm fylgir íbúðinni. Hún er á geymslugangi í kjallara og er utan uppgefinna fermetra á íbúð. 
Sameign og lóð: Hjóla- og vagnageymsla, þvottahús í kjallara þar sem hver íbúð getur verið með sína vél, góður sameiginlegur stigagangur, gróin lóð, sameiginleg bílastæði.  

FRAMKVÆMDASAGA ÍBÚÐAR OG HÚSFÉLAGS SÍÐUSTU ÁR:
- Sjá ítarlega útlistun í fylgiskjali með söluyfirliti.

Nánasta umhverfi:
Rólegt og fjölskylduvænt hverfi. Örstutt ganga er í Fossvogsdalinn, Snælandsskóla og nokkra leikskóla. Fagrilundur þar sem Breiðablik er með knattspyrnuaðstöðu og önnur íþróttaiðkun. Stutt ganga er inn í Elliðaárdal gegnum Fossvogsdal. Í nærumhverfi eru matjurtareitir sem leigðir eru vægu gjaldi, leiksvæði og tún með grillaðstöðu o.fl. Stutt akstursleið er á stofnbrautir og að öllum helstu verslanakeðjum, skyndibitastöðum, góðum almenningssamgöngum o.fl.

Allar nánari upplýsingar veita:
Gylfi Jens Gylfason, löggiltur fasteignasali og lögmaður í síma 822 5124, [email protected]
Guðbjörg Helga, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband