09.06.2024 1277566

Austurhólar 6

800 Selfoss

hero

Verð

44.900.000

Stærð

62.6

Fermetraverð

717.252 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

40.950.000

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 4 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

LIND fasteignasala kynnir bjarta og vel skipulagða tveggja herbergja, 62,6 fm íbúð á þriðju hæð í nýlegu fjölbýlishúsi byggt árið 2023 við Austurhóla 6, 800 Selfossi. Íbúðin er með rúmgóðar svalir með fallegu útsýni. Hágæða sérsmíðaðar innréttingar frá HTH, harðparket á gólfum og flotrými flísalögð. Frábær staðsetning í nýju hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu. Falleg náttúra allt um kring með margvíslegum útivistarmöguleikum. 

Eignin er skráð 62,6 fm skv. FMR og skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, rúmgóða og bjarta stofu og eldhús í alrými með stofu. Útgengt út á rúmgóðar svalir úr stofu. 
 
Allar nánari upplýsingar veita Aníta Olsen Jóhannesdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 615-1640 eða [email protected] og Gabríela Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1992 eða [email protected].

Nánari lýsing:
Forstofa/gangur er með rúmgóðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott og bjart með góðu skápaplássi, harðparket á gólfi.
Stofa er í opnu og björtu alrými sem tengir saman stofu, eldhús og borðstofu. Útgengt út á rúmgóðar svalir með fallegu útsýni.
Eldhús er með fallegri HTH innréttingu með góðu skápaplássi. Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, blástursofn, spanhelluborð og innbyggður háfur. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Sturta með glerþili, falleg innrétting, spegill með lýsingu, upphengt salerni og handklæðaofn.
Svalir eru 9,3 fm með fallegu útsýni.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu.

Austurhólar 6 er glæsilegt fimm hæða fjölbýlishús með samtals 40 íbúðum. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með báruáli og sléttu áli. Gluggar og útihurðar eru úr ál/tré. Lyfta er í húsinu. Snyrtileg sameign og fallega frágengin lóð. Steypt stétt upp við húsið og malbikað bílaplan þar sem búið er að koma upp hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla.
 
Um byggingaraðilann:
Stofnhús ehf. er framkvæmdaraðili sem sérhæfir sig í byggingu íbúðarhúsnæðis. Stofnhús er byggt á grunni aðila sem hafa verið lengi á markaðinum og tryggja þeir að hönnun og framkvæmd uppfylli ströngustu gæðaviðmið. Er kappkostað að allir samstarfsaðilar séu ábyrgir með reynslu hver á sínu sviði, þ.e. hönnuðir, stjórnendur, verktakar, birgjar os.frv.

Um er að ræða fallega, bjarta og vel skipulagða íbúð í snyrtilegu fjölbýlishúsi. Frábær staðstening í nýju hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Eign sem vert er að skoða.

Allar upplýsingar um eignina veita:
Aníta Olsen Jóhannesdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í síma 615-1640 / [email protected]
​​​​​Gabríela Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1992 / [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%  
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá. 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband