09.06.2024 1277557

Leifsgata 11

101 Reykjavík

hero

Verð

71.900.000

Stærð

90.9

Fermetraverð

790.979 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

71.450.000

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 4 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Albert Bjarni og LIND Fasteignasala kynna: Bjarta og afar vel staðsetta 3ja-4ra herbergja íbúð á 1. hæð(hálf hæð upp) í góðu steinsteyptu fjölbýli í miðbæ Reykjavíkur. Eign með mikla möguleika. Fjölskylduvæn gata í næsta nágrenni við Austurbæjarskóla, Tækniskóla og miðbæ Reykjavíkur. 
EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING. 
Íbúðin skiptist í forstofuhol sem tengir öll rýmin, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur. Auðvelt er að nýta aðra eða báðar stofurnar sem svefnherbergi. Á upprunalegum teikningum er sér forstofuherbergi með hurð út á stigagang, í dag er engin veggur og rýmið nýtt sem borðkrókur í eldhúsi.

Nánari lýsing:komið er inn um sameiginlegan inngang en þar er gengið inn íbúðina, möguleiki að hafa sér inngang í forstofuherbergi. Hol sem tengir saman öll rýmin, þar er innbyggður fataskápur. Eldhús með rúmgóðum borðkrók (forstofuherbergið), opið á milli í dag. Í eldhúsi er hvít Ikea innrétting með gas helluborði og uppvottavél sem fylgir. Samliggjandi stofur með vængjahurð á milli. Hægt að nýta aðra sem stofu eða báðar sem svefnherbergi. Svefnherbergi með innbyggðum fataskápum. Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, glugga og vaskskáp. Á gólfum eru eldra parket og vantar gólfefni á eldhúsið. Í kjallara er nýlega yfirfarið sameiginlegt þvotthús þar sem hver er með sýna vél. Eigninni fylgir sér köld geymsla undir stiga sem er ekki í fermetratölu eignar. Klóaklagnir hafa verið endurnýjaðar. Sameign nýlega yfirfarin. Gróin garður. Hús í þokkalegu ásigkomulagi, ástandsskýrsla um húsið liggur fyrir og er vel rekið húsfélag. 

Um er að ræða afar eftirsótta staðsetningu í þessari rólegu götu við Hallgrímskirkju í Reykjavík, göngufæri í miðbæinn.
Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum. Stutt í útivist, sund og fallegt umhverfi.

Allar nánari upplýsingar veitir Albert Bjarni í síma 8210626 eða á netfanginu [email protected]


Annað:
Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð með fallegu útsýni. Íbúðin er mjög vel staðsett, en stutt er í leikskólann Sólhvörf og Vatnsendaskóla. Íbúðinni fylgir vel staðsett sér stæði í lokaðri bílageymslu og sérgeymsla í sameign. Hleðslutengi fyrir rafmagnsbíl til staðar í stæði. Á lóðinni er sameiginlegur leikvöllur með leiktækjum. Húsið var sílanborið og málað sl. sumar ásamt því að tréverk var yfirfarið og gluggar þéttaðir.

Allar upplýsingar um eignina veitir Albert Bjarni fasteignasali í síma 8210626 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.

Ljósmyndir

Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband