09.06.2024 1277552

Vesturvin v2 íb 605

101 Reykjavík

hero

Verð

245.000.000

Stærð

164.1

Fermetraverð

1.492.992 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

51.900.000

Fasteignasala

Eignamiðlun

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 18 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Eignamiðlun kynnir:

Bókaðu skoðun í sýningaraðstöðu hjá Ólafi í síma 663-2508 eða [email protected]
Íbúðin er 164,1 fermetra lúxusíbúð á sjöttu hæð í nýju glæsilegu lyftuhúsi, rúmgóð og björt stofa og eldhús í alrými með eldunareyju og stórum þaksvölum útfrá stofu, fjölskylduherbergi tengt stofu, glæsilegri hjónasvítu með sér baði, fataherbergi og þaksvölum, einu herbergi, rúmgóðu baðherbergi, sér þvottahúsi, anddyri með fataskáp. Frábær staðsetning, úrval veitingastaða í næsta nágrenni, stutt í miðbæinn og alla þjónustu. Gert er ráð fyrir að íbúðin verði afhent í ágúst 2024.

Smelltu hér til að fá sent SÖLUYFIRLIT eignarinnar.
Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar um verkefnið


Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða [email protected]

Eignin
: Vesturvin V2, íbúð 02-0605, 164,1 fermetrar á sjöttu hæð með bílastæði merkt B-06 í bílageymslu og 17 fermetra geymsla merkt 02-0046 í sameign. Björt stofa og eldhús í alrými með eldunareyju og 21,4 fermetra þaksvölum frá stofu. tengt stofunni er fjölskyldurými með stórum glugga að svölum og dyrum út á svalir. Í íbúðinni er stórglæsileg hjónasvíta með stóru fataherbergi, baðherbergi og sér 19,5 fermetra þaksvölum þar sem er gert ráð fyrir heitum potti. Dyr út á svalirnar úr bæði hjónaherbergi og baðherbergi hjónaherbergis. Eitt auka herbergi er í íbúðinni, forstofa með fataskáp og baðherbergi tengt forstofu. Rúmgott þvottahús er í íbúðinni. Sérvaldar innréttingar eru í öllum íbúðum og settu hönnuðir saman nokkrar litasametningar á innréttingum. Í þessarri íbúð voru valdar litasamsetningar samkvæmt SÆR hönnunarþema - sjá nánar hér:  HÖNNUNARÞEMA  Smelltu hér til að sjá teikningu af íbúðinni: TEIKNING  Myndir eru úr fullinnréttaðri sýningaríbúði í Vesturvin 2, íbúð 205, með innréttingarþema Eimur og endurspegla ekki skipulag eignar.

Vesturvin er nýr yndisreitur í uppbyggingu í Vesturbæ Reykjavíkur. Reiturinn sem áður hét Héðinsreitur verður glæsilegt kennileiti sem auðgar borgina og bætir lífsgæði íbúanna.

Mikill metnaður hefur verði lagður í íbúðirnar á yndisreitnum Vesturvin. Það lýsir sé meðal annars í góðu innra flæði íbúða og vönduðu efnisvali í alla staði. Meðal helstu kostum íbúðanna má nefna:
-       Hágæða ítalskar innréttingar frá Cassina
-       Borðplötur úr steini
-       Gólfsíðir gluggar
-       Gólfhiti
-       Þaksvalir í mörgum íbúða
-       Möguleiki á heitum potti fyrir hluta af íbúðum  
-       Vönduð heimilistæki frá Miele og Siemens
-       Sér baðherbergi inn af svefnherbergi í stærri íbúðum auk fataherbergja.
-       Gestasnyrting í fjölmörgum íbúðum
-       Sér þvottahús í flestum þriggja herbergja íbúðum og stærri
-       Einkabílastæði í bílakjallara fylgir mörgum íbúðum

Hönnun.
Fengnir hafa verið traustir og reynslumiklir aðilar til að sjá um framkvæmd verkefnisins og verkfræðihönnun. Jáverk ehf. mun byggja húsin og verkfræðistofurnar Mannvit og Verkhönnun sjá um verkfræðihönnun.
Mikil vinna hefur verið lögð í flæði íbúða og val á innréttingum sem spegla listrænan metnað í verkefninu sem heild.
Ítölsku innanhússhönnuðirnir hjá Studio Marco Piva hafa hannað þrjú þemu fyrir innri frágang íbúðanna sem sækja innblástur í íslenska landslagið, hugtökin eru Eimur, Sær og Blámi. Hönnuninni er ætlað að skapa einstakan lífstíl sem sameinar íslenskan arkitektúr og ítalska innanhúshönnun og glæsilegan og vandaðan hátt.
 
Útsýni
Stórkostlegt útsýni verður úr íbúðum við Ánanaust yfir Faxaflóann, Esjuna og Snæfellsnes. Af efri hæðum íbúða við Vesturgötuna verður skemmtilegt útsýni yfir gamla vesturbæinn.
 
Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar: 588 9095
Kjartan Hallgeirsson 824-9093 [email protected]
Þórarinn M. Friðgeirsson 899-1882 [email protected]
Brynjar Þ. Sumarliðason 896-1168 [email protected]
Ólafur H. Guðgeirsson 663-2508 [email protected]
Unnar Kjartansson 867-0968 [email protected] 
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 [email protected]

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband