09.06.2024 1277497

Maríuhólar 21

803 Selfoss

hero

Verð

9.500.000

Stærð

0

Fermetraverð

Infinity kr. / m²

Tegund

Lóð/Jarðir

Fasteignamat

6.680.000

Fasteignasala

Husfasteign Fasteignasala

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 18 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu. 
Maríuhólar 21. Eignarlóð fyrir íbúðarhús í Skálmholtslandi. 1 ha. 10.000 fm. Jaðarlóð, liggur að landi Kílhrauns.


Um er að ræða nýtt byggingarland í Skálmholtslandi. Íbúðalóðir eru frá 7.738 -16.428 fm að stærð.
Nýtingarhlutfall lóða allt að 0,05 sem þýðir að á 10.000 fm lóð (1 ha) má byggja 500 fm.
Þægilegt byggingarland og grunnt niður á fast. Örstutt í malarnámur.
Skemmtileg og góð staðsetning þar sem allar árstíðir eiga sinn sjarma. Sutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands. Fallegt útsýni m.a. til Heklu, Eyjafjallajökuls og Tindfjalla.

Skálmholtsland er efst í Flóahreppi og ekið er inn á landið til austurs af Skeiða- og Hrunamannavegi (vegur nr. 30) 
Um 15 mín akstur er á Selfoss. 

Alls eru skipulagðar 47 lóðir á svæðinu og koma 13 lóðir í sölu í fyrsta áfanga.
Hið skipulagða land er á Sveitarfélagsmörkum Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Flóahreppur annast almenna þjónustu á svæðinu s.s. skólaakstur, snjómokstur og sorphirðu. Ath að samkvæmt deiliskipulagi á eftir að breyta innkomu inn á svæðið.

Í stofnbrautum innan svæðis verður neysluvatn (frá Flóahreppi) hitaveita (úr Áshildarmýri, rafmagn (Rarik) og ljósleiðari (Flóaljós)
Stofnbrautir fyrir þær lóðir sem eru komnar í sölu eru tilbúnar að lóðarmörkum allra lóða og áætlað er að lagnir í vegum verði tilbúnar í desember.

Í deiliskipulagsskilmálum koma fram nánari upplýsingar um byggingargerð húsa. Byggingarefni er frjálst en lögð er áhersla á að öll hús og mannvirki fari vel í umhverfi og verði í jarðlitum. Við gróðursetningu skal gæta þess að trjágróður komi ekki til með að skyggja á útsýni nágranna og forðast ágengar tegundir. Óheimilt er að láta lausamuni standa innan lóða til lengri tíma. 
Gert er ráð fyrir rotþró á hverri lóð. Deiliskipulagsskilmálar eru hluti af kynningargögnum. 

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið einkaskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.  

Ljósmyndir

Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband