08.06.2024 1277335

Engjavellir 1

221 Hafnarfjörður

hero

Verð

89.900.000

Stærð

140.4

Fermetraverð

640.313 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

81.700.000

Fasteignasala

Gimli Fasteignasala

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 12 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Gimli fasteignasala og Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse kynna:  Engjavellir 1, íbúð 102, í Hafnarfirði. Björt og vel skipulögð fjögurra-til fimm herbergja íbúð með sérinngangi á fyrstu hæð í góðu og vel staðsettu húsi nálægt skólum og allri helstu þjónustu. Íbúðin er 140,4 fm og skiptist í anddyri með innangengt á gestasnyrtingu, alrými sem telur eldhús, stofu og borðstofu með útgengt á sólríka verönd, þrjú  rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með baði og sturtu, þvottaherbergi og geymslu. Góð eign í frábærr staðsetning á góðum og fjölskylduvænum stað í Hafnarfirði.

Bókið skoðun hjá Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse  í síma 7927576, eða [email protected]


Nánari lýsing:
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp og flísum á gólfi. Innangengt á gestasalerni.
Stór og rúmgóð stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi á verönd. Möguleiki er að útbúa fjórða svefnherbergið í rými sem núna er hluti af stofu.
Opið eldhús með eyju, hvítum innréttingum og góðu skápaplássi
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp og útgengi á verönd. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi er með sturtuklefa, baðkari, góðri innréttingu og upphengdu salerni. Flísar í hólf og gólf.
Gestasalerni er inn af forstofu. Upphengt salerni, hvít innrétting og dökkar flísar á gólfi.
Þvottaherbergi er rúmgott með góðu skápa- og vinnuplássi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Geymsla er innan íbúðar með góðu geymsluplássi. Flísar á gólfi.
Afgirt verönd/sólpallur sem snýr til til suðurs og austurs. Möguleiki er á að gera annan sólpall þar sem útgengt er úr hjónaherbergi.

Mjög rúmgóð og björt íbúð á rólegum og góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í leik- og grunnskóla sem og alla helstu þjónustu og verslanir. 

Nánari upplýsingar veitir: Guðmunda Björnsdóttir Stackhouse Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 7927576, tölvupóstur [email protected] eða [email protected]

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: [email protected]
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Ath. gagnavinnsla er enn í gangi. Byggir í dag einungis á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2020.

    PóstlistiÁbendingarHafa samband