08.06.2024 1277334

Ljósheimar 6

104 Reykjavík

hero

Verð

59.900.000

Stærð

86.1

Fermetraverð

695.703 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

59.000.000

Fasteignasala

Heimili Fasteignasala

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 12 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Heimili fasteignasala kynnir til sölu vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í lyftuhúsi að Ljósheimum 6 í 104 Reykjavík. Eignin er skráð 86,1 fm að stærð, þar af íbúðarrými 82 fm og geymsla 4,1 fm, og skiptist í anddyri, gang, stofu, eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi og baðherbergi. Innan íbúðar er geymsla auk þess sem eign fylgir fyrrgreind 4,1 fm geymsla í kjallara húseignar. ATH! Frábær staðsetning og eignin getur verið laus fljótlega. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]

Nánari lýsing:
Anddyri/hol: rúmgott með parketi á gólfi, 
Stofa: björt með stórum glugga til suðurs, parket á gólfi og útgengi á suðvestur svalir eignar.
Eldhús: endurnýjuð falleg innrétting með hvítum neðri skápum og viðarlituðum efri skápum, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð, nýlegt helluborð og flísar á milli borðplötu og efri skápa. Í eldhúsi er jafnframt ágætur borðkrókur, stór gluggi með opnanlegu fagi og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: rúmgott með fataskáp, dúk á gólfi og glugga með opnanlegu fagi.
Barnaherbergi: dúkur á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi.
Baðherbergi: eldri innrétting, sturtuklefi, tengi fyrir þvottavél, gluggi með opnanlegu fagi. Á gólfi eru flísar.
Geymsla: fyrir enda gangs innan íbúðar er ágæt geymsla auk þess sem fyrrgreind sérgeymsla íbúðar er í kjallara húseignar.
Sameign: er snyrtileg með flísum á gólfi í anddyri og teppi á stiga, í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð í klæddu lyftuhúsi í mynni Laugardalsins. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., [email protected]  


Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002.  Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Ath. gagnavinnsla er enn í gangi. Byggir í dag einungis á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2020.

    PóstlistiÁbendingarHafa samband