08.06.2024 1277261

Smyrilshlíð 15

102 Reykjavík

hero

Verð

88.900.000

Stærð

88.4

Fermetraverð

1.005.656 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

77.150.000

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 5 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

LIND Fasteignasala, Ragnhildur Finnbogadóttir & Hannes Steindórsson, kynna til sölu:
Fallega, bjarta & vel skipulagða þriggja herbergja íbúð, með stæði í bílageymslu, á fjórður hæð í lyftuhúsi við Smyrilshlíð 15, Reykjavík.
  • Aukin lofthæð, 280 cm
  • Tvennar svalir
  • Lýsing hönnuð af Lumex & innréttingar frá JKE
  • Gólfsíðir gluggar
  • Síldarbeina parket frá Parka
Skráð stærð eignar skv. FMR er 88,4 fm og skiptist í íbúð 77,7 fm og geymslu 10,7 fm. Íbúðin er merkt 427. 

Eignin skiptist í:

Forstofu, hjónaherbergi, svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, tvennar svalir, geymslu og stæði í bílageymslu.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Harðparket á gólfi með brúnum fataskápum frá JKE
Eldhús: Dökkbrún innrétting með svörtum efriskápum frá JKE, sem ná upp í loft, með quartz borðplötum frá Granítsmiðjunni. Innbyggð tæki frá Miele; bakaraofn, ísskápur, uppþvottavél og helluborð. Undirlímdur vaskur með blöndunartækjum frá Tengi. Eyjan í eldhúsi er sérhönnuð og pláss er fyrir fjóra barstóla.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með harðparketi á gólfi og gólfsíðum gluggum. Útgengt er úr stofu á suður svalir sem eru 5,6 fm.
Baðherbergi: Dökkbrún, upphengd innrétting frá JKE með quartz borðplötu frá Granítsmiðjunni með fallegri handlaug. Blöndurnar tæki á baðherbergi eru frá Tengi. Flísalagt gólf og veggir flísalagðir að hluta. Sérsmíðaður spegill frá Íspan með innbyggðri lýsingu og innstungu. Upphengt salerni, sturta með glervegg, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Rúmgott með harðparketi á gólfi og góðum dökkbrúnum fataskápum frá JKE. Útgengt er út á svalir sem eru 6,5 fm
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og fataskápur frá JKE.
Geymsla: 10,7 fm að stærð, og hefur verið gerð önnur hæð innan hennar, þeir fermetrar eru óskráðir. Er staðsett í sameign á neðri hæð hússins.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg á neðri hæð hússins.
Stæði í bílageymslu: Merkt C64, búið er að setja upp grunnbúnað fyrir hleðslustöð. 

-Sérsaumaðar rúllugardínur eru í íbúðinni.
-Free@Home ljósastýring, með grunnkerfi.
-Mynddyrasími sem er tengjanlegur við snjallsíma.

-Byggingin er viðhaldslítil, húsið klætt að utan með álklæðningu.
-Gluggarnir eru vandaðir danskir ál tré gluggar frá Velfac, sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.


Garðurinn er glæsilegur og einstakur sælureitur, ásamt upphituðum gönguleiðum með snjóbræðslu í inngarði.
Smyrilshlíð 15 er vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og t.d. skóla, leikskóla, verslanir, sund, líkamsrækt, heilsugæslu.

Allar nánari upplýsingar veita:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða [email protected]
Hannes Steindórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 699-5008 eða [email protected]



Kostnaður kaupanda vegna kaupa:  Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga  er  0,8%  og lögaðila  1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum,  oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband