07.06.2024 1276929

Fossatunga 3

270 Mosfellsbær

hero

Verð

129.900.000

Stærð

226.7

Fermetraverð

573.004 kr. / m²

Tegund

Rað/Par

Fasteignamat

130.000.000

Fasteignasala

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Símanúmer


Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 6 daga.


Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

** Opið hús þriðjudaginn 11.júní frá kl. 16:30 til 17:00 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **
 
Fasteignasala Mosfellsbæjar S: 586-8080 kynnir: Nýtt 226,7 m2 raðhús á tveimur hæðum við Fossatungu 3 í Mosfellsbæ. Fallegt útsýni. Um er að ræða mjög fallegt og vel skipulagt raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Birt stærð eignarinnar er 226,7 m2, þar af er íbúðarhluti 202,2 m2 og sambyggður bílskúr 24,5 m2. Á jarðhæð er forstofa, bílskúr, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og geymsla. Á efri hæðinni er hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpsstofa (hægt að breyta í svefnherbergi). Mjög stórar svalir með fallegu útsýni. Húsið afhendist fullbúið á byggingarstigi 4 (nýi staðallinn) með grófjafnaðri lóð en þó er búið að helluleggja fyrir framan inngang.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.
 

Nánari lýsing:
Neðri Hæð: Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. Úr forstofu er gengið inn í bílskúr. Bílskúr er með epxoý á gólfi. Herbergin eru 3 á neðri hæðinni, öll með parketi á gólfi og fataskápum. Baðherbergi nr. 1 er með innréttingu, vegghengdu salerni og 'walk in' sturtu. Flísar á gólfi og veggjum. Gluggi er á baðherbergi. Þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gluggi er á þvottahúsi. Inn af þvottahúsi er geymsla með flísum á gólfi. Gluggi er á geymslu.

Efri hæð: Stofa, eldhús og borðstofa er í opnu og björtu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðvesturátt með fallegu útsýni. Sjónvarpshol er inn af stofu og með parketi á gólfi. Hægt að breyta í auka svefnherbergi. Hjónaherbergi er með parketi á gólfi. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi. Baðherbergi nr. 2 er með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofn og 'walk in' sturtu. Gluggi er á baðherbergi.  Eldhús er með fallegri L-laga innréttingu og eyju. Í innréttingu er innbyggð uppþvottavél, spanhelluborð, tveir ofnar. Gert ráð fyrir tveimur innbyggðum ísskápum í innréttingu.

Eldhúsinnrétting, baðinnréttingar og fataskápar eru frá HTH. Eldhústæki frá AEG, þ.e. ofn, helluborð (span) og innbyggð uppþvottavél. Gólf er flísalagt á baðherbergjum, þvottahúsi, geymslu og anddyri, en harðparketi á öðrum rýmum. Flísar og harðparket eru frá Parka. Bílskúr: Epoxy á gólfi. Innihurðir eru frá Parka. Handrið frá Vélsmiðjunni Altak. Húsið er byggt úr forsteyptum einingum. Útveggir eru klæddir forsteyptri veðurkápu að utanverðu og verða húsin afhent ómáluð. Þak er varið með PVC dúk með malarfargi. Lóð er grófjöfnuð og skilast með sorpskýli fyrir 3 sorpílát. Búið er að helluleggja fyrir framan inngang og.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á (0,3% af brunabótamati).

Verð kr. 129.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

Samskiptasaga eignar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband