07.06.2024 1276753

Söluskrá FastansLindarvað 7

110 Reykjavík

hero

31 myndir

98.900.000

799.515 kr. / m²

07.06.2024 - 14 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 21.06.2024

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

123.7

Fermetrar

Fasteignasala

Sunna

[email protected]
8633445
Bílskúr
Kjallari
Gólfhiti
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Sunna fasteignasala ehf. og  Marta Jónsdóttir, lögfr. og lögg.fasteignasali kynna í einkasölu eignina Lindarvað 7, 110 Reykjavík.

Um er að ræða glæsilega 4ra herbergja neðri sérhæð í fallegu tvíbýlishúsi á einstaklega góðum stað í Norðlingaholti. Þessi eign býður upp á þrjú rúmgóð svefnherbergi, þvottahús innan íbúðar, stóran timburpall og sér afgirtan garð sem snýr í suðvestur. Innréttingar eru hvítar og gólfhiti er í íbúðinni.

Nánari lýsing eignar:
Bílastæði: Bílastæði eru beint við húsið, hellulögð með snjóbræðslu. Gengið er að íbúðinni á jarðhæð beint frá bílastæðunum.
Sérinngangur: Komið er inn í anddyri með dökkum flísum og fataskápum.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er gott með parketi á gólfi og hvítum fataskáp.
Barnaherbergi: Barnaherbergin eru bæði rúmgóð með parketi á gólfi og með tvöföldum hvítum fataskáp
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, sturtuklefa, handklæðaofni, upphengdu salerni og nýlegri fallegri innréttingu.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á rúmgóðan timburpall og þaðan út í afgirtan garð. Möguleiki á að hafa kamínu í stofu. 
Eldhús: Opið inn í stofu með fallegri innréttingu frá HTH með efri og neðri skápum. Innréttingin er hvít með dökkri borðplötu, Færanleg eyja er í eldhúsi sem getur fylgt með, ofn er í vinnuhæð. Tækin eru frá AEG (uppþvottavél, ofn og helluborð. Hvítur Simens ísskápur getur fylgt með. 
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum.
Tengi fyrir heitan pott: Rafmagnspottur á myndum fylgir ekki með í kaupunum en seljendur eru reiðubúnir að selja hann gegn sér greiðslu. Auðvelt er að setja annan og allar tengingar eru til staðar, eins og gefur að skilja.
Þvottahús: Þvottahús innan íbúðar með innréttingu og upphengdum snúrum.
Geymsla: Geymslan er 7,5fm er staðsett í bílskúr við inngang íbúðar.
Geymsluskúr: Í garðinum er geymsluskúr sem fylgir eigninni.

Þetta er mjög falleg og vel skipulögð eign á eftirsóttum stað, þar sem stutt er í skóla og fallegar gönguleiðir við Elliðavatn.
Nánari upplýsingar veitir Marta Jónsdóttir, lögfr. og lögg.fasteignasali í síma 8633445 eða í netfanginu [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Sunna fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
31.000.000 kr.123.70 250.606 kr./m²229832711.07.2011

43.000.000 kr.123.70 347.615 kr./m²229832731.12.2015

57.500.000 kr.123.70 464.834 kr./m²229832702.08.2017

98.500.000 kr.123.70 796.281 kr./m²229832702.07.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

VerðsagaVerðsaga

Byggt á þinglýstum kaupsamningum

Byggir á kaupsamningum sem deila heimilsfangi og stærð

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

AuglýsingasagaAuglýsingasaga

Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum

Fjöldi skráningaÁsett verðFermetraverðTímabil.
1 skráningar
98.900.000 kr.799.515 kr./m²07.06.2024 - 21.06.2024
1 skráningar
44.900.000 kr.362.975 kr./m²28.10.2015 - 13.11.2015

Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 2 sinnum síðan 2014.

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

040101

Íbúð á 1. hæð
123

Fasteignamat 2025

92.250.000 kr.

Fasteignamat 2024

90.150.000 kr.

040201

Íbúð á 2. hæð
169

Fasteignamat 2025

111.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

108.700.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.


    Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

    PóstlistiÁbendingarHafa samband