30.05.2024 1272932

Söluskrá FastansLeifsgata 11

101 Reykjavík

hero

11 myndir

71.900.000

790.979 kr. / m²

30.05.2024 - 8 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 07.06.2024

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

90.9

Fermetrar

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

[email protected]
8210626
Útsýni
Kjallari
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Albert Bjarni og LIND Fasteignasala kynna: Bjarta og afar vel staðsetta 3ja-4ra herbergja íbúð á 1. hæð(hálf hæð upp) í góðu steinsteyptu fjölbýli í miðbæ Reykjavíkur. Eign með mikla möguleika. Fjölskylduvæn gata í næsta nágrenni við Austurbæjarskóla, Tækniskóla og miðbæ Reykjavíkur. 
EIGNIN ER LAUS VIÐ KAUPSAMNING. 
Íbúðin skiptist í forstofuhol sem tengir öll rýmin, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi og tvær samliggjandi stofur. Auðvelt er að nýta aðra eða báðar stofurnar sem svefnherbergi. Á upprunalegum teikningum er sér forstofuherbergi með hurð út á stigagang, í dag er engin veggur og rýmið nýtt sem borðkrókur í eldhúsi.

Nánari lýsing:komið er inn um sameiginlegan inngang en þar er gengið inn íbúðina, möguleiki að hafa sér inngang í forstofuherbergi. Hol sem tengir saman öll rýmin, þar er innbyggður fataskápur. Eldhús með rúmgóðum borðkrók (forstofuherbergið), opið á milli í dag. Í eldhúsi er hvít Ikea innrétting með gas helluborði og uppvottavél sem fylgir. Samliggjandi stofur með vængjahurð á milli. Hægt að nýta aðra sem stofu eða báðar sem svefnherbergi. Svefnherbergi með innbyggðum fataskápum. Baðherbergi með baðkari með sturtuaðstöðu, glugga og vaskskáp. Á gólfum eru eldra parket og vantar gólfefni á eldhúsið. Í kjallara er nýlega yfirfarið sameiginlegt þvotthús þar sem hver er með sýna vél. Eigninni fylgir sér köld geymsla undir stiga sem er ekki í fermetratölu eignar. Klóaklagnir hafa verið endurnýjaðar. Gróin garður. Hús í þokkalegu ásigkomulagi, ástandsskýrsla um húsið liggur fyrir og er vel rekið húsfélag. 

Um er að ræða afar eftirsótta staðsetningu í þessari rólegu götu við Hallgrímskirkju í Reykjavík, göngufæri í miðbæinn.
Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum. Stutt í útivist, sund og fallegt umhverfi.

Allar nánari upplýsingar veitir Albert Bjarni í síma 8210626 eða á netfanginu [email protected]


Annað:
Um er að ræða fallega og vel skipulagða íbúð með fallegu útsýni. Íbúðin er mjög vel staðsett, en stutt er í leikskólann Sólhvörf og Vatnsendaskóla. Íbúðinni fylgir vel staðsett sér stæði í lokaðri bílageymslu og sérgeymsla í sameign. Hleðslutengi fyrir rafmagnsbíl til staðar í stæði. Á lóðinni er sameiginlegur leikvöllur með leiktækjum. Húsið var sílanborið og málað sl. sumar ásamt því að tréverk var yfirfarið og gluggar þéttaðir.

Allar upplýsingar um eignina veitir Albert Bjarni fasteignasali í síma 8210626 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignsala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900 kr.

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Ath. að Verðmat Fastans er enn í þróun og byggir í dag á mjög grunnum upplýsingum.

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
22.000.000 kr.90.90 242.024 kr./m²200868619.09.2011

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

VerðsagaVerðsaga

Byggt á þinglýstum kaupsamningum

Byggir á kaupsamningum sem deila heimilsfangi og stærð

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

AuglýsingasagaAuglýsingasaga

Endurskráningar sömu eignar á mismunandi verð- og tímabilum

Fjöldi skráningaÁsett verðFermetraverðTímabil.
26 skráningar
71.900.000 kr.790.979 kr./m²21.05.2024 - 24.05.2024
10 skráningar
74.900.000 kr.823.982 kr./m²17.04.2024 - 26.04.2024
13 skráningar
75.700.000 kr.832.783 kr./m²26.03.2024 - 27.03.2024
20 skráningar
77.700.000 kr.854.785 kr./m²19.01.2024 - 26.01.2024

Eignin hefur verið auglýst / endurskráð 69 sinnum síðan 2014.

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010001

Íbúð á jarðhæð
56

Fasteignamat 2025

44.850.000 kr.

Fasteignamat 2024

45.400.000 kr.

010002

Íbúðarherb í kjall á jarðhæð
21

Fasteignamat 2025

26.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

26.550.000 kr.

010101

Íbúð á 1. hæð
90

Fasteignamat 2025

70.450.000 kr.

Fasteignamat 2024

71.450.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
122

Fasteignamat 2025

81.500.000 kr.

Fasteignamat 2024

82.600.000 kr.

010301

Íbúð á 3. hæð
36

Fasteignamat 2025

40.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

40.600.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

  1. Umsókn / FyrirspurnFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem eru að innréttuð hefur verið vinnustofa og snyrting og framhlið breytt á bílskúr á lóð nr. 11 við Leifsgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. september 2022 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 5. september 2022. Einnig fylgir samþykki meðeigenda dags. 22. desember 2022 og tölvupóstur frá eiganda xxx þar sem samþykki er dregið til baka.

    12.600B

  2. Umsókn / FyrirspurnFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum sem er að breyta framhlið og notkun bílskúrs í vinnustofu með snyrtingu, á lóð nr. 11 við Leifsgötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. september 2022 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 5.september 2022.

    Vísað til athugasemda.

  3. (fsp) - Breyting á bílskúrNeikvætt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Spurt er hvort leyfi fáist til þess að breyta bílskúr þannig að í stað bílskúrshurðar komi gluggi og hurð, gluggar á gafli verði endurnýjaðir, innveggir settir upp og sturta og klósett tengt inn á eldri lögn á lóð nr. 11 við Leifsgötu. Erindi fylgja afrit af ljósmyndum teknum af núverandi ástandi bílskúrs og afrit af tölvupósti frá umsækjanda dags. 28. ágúst 2019. Útskrift úr gerðbók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. september 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2019.

  4. (fsp) - Breyting á bílskúrFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Spurt er hvort leyfi fáist til þess að breyta bílskúr þannig að í stað bílskúrshurðar komi gluggi og hurð, gluggar á gafli verði endurnýjaðir, innveggir settir upp og sturta og klósett tengt inn á eldri lögn á lóð nr. 11 við Leifsgötu. Erindi fylgja afrit af ljósmyndum teknum af núverandi ástandi bílskúrs og afrit af tölvupósti frá umsækjanda dags. 28. ágúst 2019.

  5. Breyting á bílskúrFrestað

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Sótt er um leyfi til þess að breyta bílskúr þannig að í stað bílskúrshurðar komi gluggi og hurð, gluggar á gafli verði endurnýjaðir, innveggir settir upp og sturta og klósett tengt inn á eldri lögn. Erindi fylgja afrit af ljósmyndum teknum af núverandi ástandi bílskúrsins.

  6. (fsp) stækkun þakgluggaJákvætt

    Byggingarfulltrúi | Reykjavík

    Spurt er hvort leyfi fengist til að setja stærri þakglugga, voru 58 x 50 cm verða 140 x 78 cm., á bað og gang risíbúðar í fjölbýlishúsinu á lóð nr. 11 við Leifsgötu.

    Að uppfylltum skilyrðum, enda verði sótt um byggingarleyfi


Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).

PóstlistiÁbendingarHafa samband