Söluauglýsing: 1265536

Grenigrund 36

800 Selfoss

Verð

78.500.000

Stærð

123.2

Fermetraverð

637.175 kr. / m²

Tegund

Rað/Par

Fasteignamat

42.800.000

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 3 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Fullbúið og vel frágengið parhús á mjög góðum stað við Grenigrund 36 á Selfossi.
Húsið er timburhús, klætt að utan með litaðri steniklæðningu, litað járn er á þaki. Heildarstærð eignarinnar er 123,2m2 og er sambyggður bílskúr 27,1m2 þar af.

Að innan skiptist eignin í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 2 svefnherbergi ,stofu og eldhús.
Parket eru á gólfi í forstofu og þar er góður skápur. Herbergin eru rúmgóð, parket á gólfi og rúmgóður fataskápur í hjónaherbergi. Einnig fataskápur í barnaherbergi.
Baðherbergi er nýuppgert flísar á gólfi og fibo baðplötur á veggjum, þar er góð innrétting og sturta.
Upptekið loft er í stofu og eldhúsi, falleg innrétting er í eldhúsi með vönduðum tækjum. Úr stofu er hurð útá sólpall.
Þvottahúsið er flísalagt, þar er góð innrétting, skolvaskur og hurð útá baklóð.

Bílskúr er klæddur og málaður, geymsluloft er yfir hluta hans. Auðvelt er að koma fyrir aukaherbergi í enda skúrsins.
Stór sólpallur með skjólveggjum er við húsið, geymsluhús og heitur pottur er á pallinum.
Lóðin er afgirt, gróin og sérlega falleg, innkeyrsla er malbikuð og allt nærumhverfi snyrtilegt.
Staðsetning hússins er mjög góð en eignin stendur í rólegum botnlanga í grónu hverfi.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
[email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband