11.05.2024 1264743

Söluskrá FastansJöfursbás 5

112 Reykjavík

hero

19 myndir

88.900.000

931.866 kr. / m²

11.05.2024 - 20 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 31.05.2024

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

95.4

Fermetrar

Fasteignasala

LIND Fasteignasala

[email protected]
822 2123
Gólfhiti
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ HAFIÐ - Sýni samdægurs. Bókaðu skoðun í síma 822 2123 eða [email protected] 

LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir Jöfursbás 5B, Reykjavík -  íbúð 0206.  3ja herbergja endaíbúð 95,4 m2 á annarri hæð með óheftu útsýni til sjávar, þar af geymsla 7,7 m2(merkt 0014).  Íbúðinni fylgir stæði merkt B005 í lokuðu bílahúsi.  Íbúðin er skemmtilega hönnuð með fallegu eldhúsi,stofu, borðstofu, baðherbergi, þvottahúsi, og tveimur svefnherbergjum ásamt fataherbergi.  Gólfhiti í allri íbúðinni og gólfsíðir gluggar. Svalir til vesturs út frá stofu.  Óheft tsýni til sjávar frá stofu, eldhúsi og svefnherbergjum þar sem íbúðin er staðsett við strandlengjuna. Íbúðin er með aukinni lofthæð allt að 280cm.


Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit.  Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum.  Flísar á votrýmum og vandað parket á aðalflötum íbúðar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.

* sjávarútsýni
* aukin lofthæð 
* sérsmíðaðar innréttingar sem ná upp í loft.
* vönduð gólfefni
* gólfhiti
* gólfsíðir gluggar
* quartz steinn á borðum og undirlímdir vaskar
* snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu 
* spennandi umhverfisskipulag í nýju hverfi


Nánari lýsing íbúðar
Forstofa með innbyggðum fataskáp sem nær til lofts.
Eldhús með góðu skápaplássi og nær innrétting til lofts.  Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum
og út frá eldhúsi er stór gólfsíður gluggi.
Stofa og borðstofa með gólfsíðum útsýnisgluggum og útgeng á svalir til vesturs.  
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone.  
Þvottahús innan íbúðar með flísalögðu gólfi og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara
Hjónaherbergi með fataherbergi innaf.   Gólfsíður gluggi til sjávar.
Barnaherbergi með góðum fataskáp sem nær til lofts
Geymsla merkt íbúðinni í kjallara

Hjóla- og vagnageymsla í sameign
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi. 
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is 

Íbúðirnar í húsinu eru samtals 23 , mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 52,7 m2-147,5 m2. Næg stæði fyrir utan hús.

Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
 
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
 
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki.  Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli.  Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan. 

Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða [email protected] 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010104

Íbúð á 1. hæð
102

Fasteignamat 2025

69.950.000 kr.

Fasteignamat 2024

68.700.000 kr.

010105

Íbúð á 1. hæð
56

Fasteignamat 2025

47.550.000 kr.

Fasteignamat 2024

46.800.000 kr.

010106

Íbúð á 1. hæð
55

Fasteignamat 2025

47.200.000 kr.

Fasteignamat 2024

46.450.000 kr.

010107

Íbúð á 1. hæð
80

Fasteignamat 2025

58.800.000 kr.

Fasteignamat 2024

57.850.000 kr.

010204

Íbúð á 2. hæð
105

Fasteignamat 2025

74.200.000 kr.

Fasteignamat 2024

73.150.000 kr.

010205

Íbúð á 2. hæð
57

Fasteignamat 2025

47.750.000 kr.

Fasteignamat 2024

47.000.000 kr.

010206

Íbúð á 2. hæð
55

Fasteignamat 2025

47.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

46.450.000 kr.

010207

Íbúð á 2. hæð
97

Fasteignamat 2025

70.850.000 kr.

Fasteignamat 2024

69.900.000 kr.

010305

Íbúð á 3. hæð
102

Fasteignamat 2025

69.600.000 kr.

Fasteignamat 2024

68.400.000 kr.

010306

Íbúð á 3. hæð
118

Fasteignamat 2025

89.700.000 kr.

Fasteignamat 2024

87.950.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband