03.05.2024 1260242

Söluskrá FastansGrenimelur 35

107 Reykjavík

hero

49 myndir

159.900.000

729.138 kr. / m²

03.05.2024 - 7 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 10.05.2024

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

219.3

Fermetrar

Fasteignasala

Landmark

[email protected]
663 2300
Bílskúr
Svalir
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, lögg. fasteignasali kynna í einkasölu falleg sérhæð með bílskúr í reisulegu húsi við Grenimel 35, 107 Reykjavík. Húsið var teiknað af Halldóri H. Jónssyni arkítekt árið 1945 og hefur fengið mjög gott og reglulegt viðhald. Íbúðin er á einni hæð, 172,3 fm auk 33,4 fm bílskúrs. Einnig tilheyrir íbúðinni rúmgóð geymsla 13,6 fm undirbískúr. Eignin er alls 219,3 fm samkvæmt HMS. Íbúðin er töluvert endurnýjuð. 

Skipulag telur forstofu, hol, eldhús, borðstofu, stofu, bókaherbergi, svefnherbergisgang, 4 svefnherbergi, svalir, baðherbergi, geymslu/kompu, þvottahús í kjallara, bílskúr og sér geymslu í kjallara bílskúrs. Pallur fyrir aftan bílskúrinn og stór sameiginlegur garður í góðri rækt.

Smelltu hér til að fá söluyfirliti en allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða [email protected].

 
Nánari lýsing: 
Forstofa
 er flísalögð, stigahol með teppi. 
Hol er parketlagt, með góðum fataskáp, og þaðan er gengið inn í eldhús, stofu, bókaherbergi og svefnherbergisgang.
Eldhús er rúmgott og parketlagt. Mjög falleg upprunaleg innrétting úr birds eye viði á einum vegg, ljós IKEA innrétting á öðrum. Uppþvottavél, gas-helluborð og bakarofn. 
Borðstofa er rúmgóð, björt og parketlögð. Rennihurð með frönskum gluggum skilur hana frá stofunni. 
Stofa er parketlögð, stór og björt með glæsilegum glugga til suðurs og vesturs, og útsýni yfir garðinn. Gengið inn í stofu frá holi og borðstofu. 
Bókaherbergi er parketlagt og skilið frá stofu með rennihurð, en einnig er gengið inn í það frá holi. Innbyggðar bókahillur þekja einn vegg herbergisins. Bókaherbergið gæti vel nýst sem fimmta svefnherbergið.
Kompa inn af holi er lítil og dúkalögð. Þar er búið að leggja rafmagn fyrir þvottavél, og væri hægt að komast í vatn og niðurfall.
Svefnherbergisgangur er parketlagður, og þaðan er gengið inn í svefnherbergin og baðherbergið.
Svefnherbergi 1 er parketlagt með fataskáp og stórum glugga til suðurs, útgengt á vestur-svalir.
Svefnherbergi 2 er parketlagt með stórum glugga til suðurs.
Svefnherbergi 3 er parketlagt með stórum innbyggðum fataskáp og glugga til vesturs.
Svefnherbergi 4 er parketlagt með glugga til norðurs. Svefnherbergi 3 og 4 voru áður eitt herbergi og hægt að sameina aftur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með flísum frá Birgisson. Sturta, innbyggð blöndunartæki, handklæðaofn og upphengt klósett. Tekk-innrétting með hvítum vaski.
  
Þvottahús er í kjallara, og er sameiginlegt (notað af 2-3 íbúðum). 
Bílskúr er rúmgóður með hita og rafmagni. Undir bílskúrnum er geymsla.
Garður er stór og hefur fengið gott viðhald. Hann er umlukinn runnagróðri og reynitrjám og með þó nokkrum fjölærum plöntum. Í horni garðsins er trépallur umlukinn skjólgirðingu.
 
Eigninni hefur verið vel viðhaldið síðustu ár:
2023 - Neyslu- og ofnalagnir í húsi endurnýjaðar
2023 - Skipt um skólplagnir í húsi (og asbest fjarlægt)
2023 - steypuviðgerðir og málun á vegg um ruslageymslu
2023 - frárennslislögn út í götu lagfærð og henni afsalað til Veitna
2022 - Skjólveggur málaður
2022 - Skipt um grindverk
2017 - Baðherbergi endurnýjað
2016 - Steypuviðgerðir og endursteinun
2016 - Skipt um þakrennur
2016 - Skipt um þá glugga, pósta og gler sem þörfnuðust endurnýjunar í húsinu
2014 - Skipt um gler og glugga-pósta í vesturhluta íbúðar
2008 - Skipt um gler og glugga-pósta í austurhluta íbúðar
2003 - eða svo, parketlagt, skipt um hluta eldhúsinnréttingar
1998 - Dren lagt fyrir framan hús og skipt um allar skólplagnir í lóð

Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum [email protected] en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010001

Íbúð á jarðhæð
151

Fasteignamat 2025

94.300.000 kr.

Fasteignamat 2024

92.650.000 kr.

010101

Íbúð á 1. hæð
109

Fasteignamat 2025

75.550.000 kr.

Fasteignamat 2024

74.500.000 kr.

010102

Íbúð á 1. hæð
97

Fasteignamat 2025

72.000.000 kr.

Fasteignamat 2024

70.950.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
219

Fasteignamat 2025

128.350.000 kr.

Fasteignamat 2024

125.750.000 kr.

010301

Ósamþykkt íbúð á 3. hæð
59

Fasteignamat 2025

46.100.000 kr.

Fasteignamat 2024

45.500.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband