Söluauglýsing: 1259049

Skerjabraut 1

170 Seltjarnarnes

Verð

67.900.000

Stærð

81.5

Fermetraverð

833.129 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

62.650.000

Fasteignasala

Trausti

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 14 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Vel skipulögð og rúmgóð 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með skjólgóðum sólpalli í snyrtilegu lyftuhúsi á Seltjarnarnesi. Húsið var byggt árið 2015. Tengi fyrir þvottavél í íbúðinni. Stutt í grunnskóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug, Heilsugæslu og ýmsa þjónustu á Eiðistogi. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 81,5fm og þar af er geymsla 7,1fm.

Nánari lýsing:
Forstofa með góðu skápaplássi sem nær alveg upp í loft og parketi á gólfi.
Stofa er í opnu rými við eldhús, rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Útgengi úr stofu á sérafgirtan sólpall. 
Eldhús með hvítri innréttingu, helluborði, gufugleyp, flísum á milli skápa og parketi á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með fataskápum sem ná alveg upp í loft og parketi á gólfi.
Baðherbergi með innangengri sturtu, hvít innrétting, handklæðaofn, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og flísalagt í hólf og gólf.


Geymsla íbúðar er 7,1fm ásamt aðgangi að sameiginlegri hjóla- vagnageymslu. 
Í sameigninni er einnig sameiginlegt þvottahúsi þar sem hver íbúð er með sitt tengi. 

ÞETTA ER MJÖG FALLEG EIGN Í GRÓNU OG EFTIRSÓTTU HVERFI Á SELTJARNARNESI SEM TILVALIÐ ER AÐ SKOÐA

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfaningu [email protected]

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband