27.04.2024 1256694
Langalína 21
210 Garðabær
45 myndir
94.900.000
904.671 kr. / m²
27.04.2024 - 13 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 10.05.2024
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
104.9m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2013Fasteignamat
85.050.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2291171Byggingarnúmer*
1139599Brunabótamat
60.940.000Verðmat Fastans
Væntanlegt
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Eignamiðlun kynnir:
Glæsileg þriggja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð í lyftuhúsi með fimm metra lofthæð í stofu og borðstofu. Sólríkar yfirbyggðar svalir til suðvesturs út frá stofu. Eignin er staðsett við ylströndina í Sjálandi í göngufæri við grunn- og leikskóla. Eignin er skráð 104,9 fermetrar samkvæmt fasteignaskrá, sem skiptist í 96,3 fermetra íbúð merkt 0311 og 8,6 fermetra geymslu merkt 0028 inn af bílastæði í bílakjallara; stæði merkt B04. Húsið er byggt af BYGG og afhent í ágúst 2013 en sterkt húsfélag hefur að sögn eigenda sinnt viðhaldi vel frá byggingu. Núverandi eigandi hefur endurnýjað íbúðina talsvert.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs. í síma 663-2508 eða [email protected]
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SÆKJA SÖLUYFIRLIT
Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, borðstofu, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, þvottahús og yfirbyggðar svalir.
Rúmgott parketlagt anddyri með góðum fataskápum. Rúmgott glæsilegt parketlagt opið rými með mikilli lofthæð þar sem er stofa, borðstofa og eldhús. Frá stofu er gengið út á yfirbyggðar sólríkar suðvestur svalir þar sem kvöldsólar nýtur til sólarlags. Af svölunum er útsýni yfir ylströndina og allt til Bessastaða. Í stofu er innfelld lýsing. Eldhús með fallegri innréttingu, sem var sprautulökkuð 2023 ásamt því að skipt var um höldur, og innfelldri lýsingu. Stórt parketlagt hjónaherbergi með góðum skápum. Auðvelt er að slá upp vegg í herberginu og búa þannig til fataherbergi með opnanlegum glugga og góðri lýsingu. Parketlagt barnaherbergi með skáp. Rúmgott baðherbergi með dökkgráum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Gott skápapláss er á baðherberginu með möguleika á viðbót í innréttinguna, sem er frá Brúnás. Góð flísalögð sturta með gleri auk handklæðaofns. Þvottahús er innan íbúðar. Þar er aðstaða fyrir þvottavél, þurrkara og frystiskáp. Með íbúðinni fylgir stæði í rúmgóðri bílgeymslu og góð geymsla inn af bílastæði. Búið er að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð að stæðinu. Hægt er að keyra inn og út úr bílakjallaranum á tveimur stöðum sem gerir hann einstaklega aðgengilegan.
Núverandi eigandi hefur gert ýmsar endurbætur á eigninni: Á árinu 2023 var svefnherbergi málað, innréttingar á baði og í eldhúsi voru sprautulakkaðar og skipt um höldur. Fataskápar og hurðar voru sprautulakkaðar 2022. Sérsaumuðu gluggatjöld, sem fylgja íbúðinni, voru sett upp í stofu 2022. Íbúðin var öll máluð og gluggar lakkaðir, og sett nýtt parket á alla íbúðina 2020.
Eignin er vel staðsett með tilliti til útivistar, grunn- og leikskóla, en hverfið er við Arnarnesvog í Garðabæ, í fjölskylduvænu og fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Ökuleiðir til og frá hverfinu eru greiðfarnar, stutt í Smáralind og miðbæ Garðabæjar. Vestast við voginn er náttúruleg fjara og í framhaldi af henni, 100m frá íbúðinni, er sjóbaðsströnd sem snýr í sólarátt.
Öflugt húsfélag er starfandi fyrir Löngulínu 15-23 og hefur sinnt viðhaldi vel frá byggingu hússins. Síðustu 2 ár hafa stigagangar verið málaðir og húsið sílanborið að utan. Eignaumsjón sér um allt utanumhald fyrir húsfélagið.
Glæsileg eign í einu eftirsóttasta hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Við erum að vinna að uppfærslu á Verðmati Fastans. Það kemur aftur von bráðar.
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
34.500.000 kr. | 104.90 m² | 328.885 kr./m² | Fjölbýli | 2291173 | 16.07.2013 | ✅ | ||
54.900.000 kr. | 104.90 m² | 523.356 kr./m² | Fjölbýli | 2291173 | 19.03.2018 | ✅ | ||
55.900.000 kr. | 104.20 m² | 536.468 kr./m² | Fjölbýli | 2291171 | 15.12.2018 | ✅ | ||
55.900.000 kr. | 104.20 m² | 536.468 kr./m² | Fjölbýli | 2291171 | 26.03.2019 | ✅ | ||
56.000.000 kr. | 104.90 m² | 533.842 kr./m² | Fjölbýli | 2291173 | 18.12.2019 | ✅ | ||
88.500.000 kr. | 104.20 m² | 849.328 kr./m² | Fjölbýli | 2291171 | 07.06.2024 | ✅ | ||
94.000.000 kr. | 104.90 m² | 896.092 kr./m² | Fjölbýli | 2291173 | 19.06.2024 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1256694
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 94.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 60.940.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 85.050.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 904.671
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 104.9
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 27.04.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 10.05.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 27.04.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 210
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Langalína 21
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2013
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 3
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 2
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 0
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 0
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 0
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Langalína
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 21
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).