Söluauglýsing: 1255831

Grímsgata 8 (303)

210 Garðabær

Verð

74.900.000

Stærð

89.5

Fermetraverð

836.872 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

6.630.000

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 5 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

*** Nýjar 3-5 herbergja íbúðir komnar í sölu ***
Fasteignasalan TORG kynnir: Nýtt í sölu glæsileg fullbúin 3ja herbergja íbúð á 3.hæð við Grímsgötu 8 í Urriðaholti. Afhending er í júlí 2024.

Íbúð 303 er 3 herbergja íbúð á 3.hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er með tveimur svefnherbergjum, eldhús, baðherbergi, stofu og geymslu. Birt stærð eignar er 89,5 fm og þar af er 4,6 fm geymsla. Íbúðin skilast fullbúin með harðparketi og á votrýmum eru flísar frá framleiðandanum NAXB, af gerðinni Pro fluid í litnum Ivory, frá Álfaborg, stærð 60x60 cm. Í eldhúsi fylgja vönduð eldhústæki frá Siemens. Innbyggður kæli-/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél fylgir eldhúsi. Í eldhúsi er vönduð Nobilia innrétting frá GKS trésmiðju, borðplata úr kvartssteini frá Silestone. Loftskiptikerfi. Myndavéladyrasími. Allar innréttingar og skápar eru af vandaðri gerð frá GKS trésmiðju.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

Nánari lýsing eigna er hér að neðan: Grímsgata 8 er fimm hæða fjölbýlishús með einu stiga- og lyftuhúsi. Í húsinu eru 19 íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Aðalinngangur hússins er á jarðhæð og hafa allar íbúðir sérinngang af svalagangi. Á jarðhæð er ein íbúð sem hefur sérinngang og sérafnotareit í suðlægar áttir. Sérgeymslur, vagna- og hjólageymsla, tæknirými og sorpgeymsla ásamt beinu aðgengi að bílageymslu með níu merktum bílastæðum eru á jarðhæð. 
Á 2.-5. hæð eru 18 íbúðir með inngöngum sem tengjast svalagöngum, stiga- og lyftuhúsi. Allar þær íbúðir eru búnar skjólgóðum svölum í suðlægar áttir. 

Almennt um byggingarnar: Húsbyggjandi og aðalverktaki er Gerð ehf. Burðarkerfi byggingarinnar er staðsteypt. Húsið er einangrað með steinull og klætt með álklæðningarkerfi sem veðurkápu ásamt steintrefjaplötum á stigahúsi og jarðhæð. Milliveggir innanhúss eru reistir úr blikkstoðum og klæddir tvöföldu gipsi hvoru megin. 
Íbúðum er skilað fullbúnum með gólfefnum á öllum rýmum. Baðherbergi eru með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta. Forstofur og gólf þvottahúsa eru flísalögð.

Eldhúsinnréttingar eru frá GKS trésmiðju. Eldhústæki eru frá Siemens. Baðherbergi eru flísalöggð með flísum úr Álfaborg. Á baðherbergi er handlaug, innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn, og sturta með Unidrain niðurfalli.Í bílageymslu er gert ráð fyrir mögulegri tengingu rafbíla í öllum bílastæðum.
Sameign skilast fullbúin með fullfrágenginni lyftu. Lóð er fullfrágengin, hellulögð ásamt gróðri og þökulögn skv. teikningum.  

Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir, lögg.fasteignasali í síma 696-6580 eða [email protected]

Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortnar náttúru og góðar samgönguæðar sem stytta leiðir í allar áttir. Sjá nánar um Urriðaholt: www.urridaholt.is.

Fylgdu mér á  Instagram og Facebook til að fá nýjustu upplýsingar um eignir til sölu og aðrar nytsamlegar upplýsingar um fasteignamarkaðinn. Vantar þig hjálp við að finna eign kíktu á https://verdmatfasteigna.is/vid-hjalpum-ther-ad-finna-draumaeignina/ Viltu vita hvers virði þín eign er ? www.verdmatfasteigna.is

Ljósmyndir

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband