Söluauglýsing: 1245680

Álfaskeið 70

220 Hafnarfjörður

Verð

64.900.000

Stærð

110.8

Fermetraverð

585.740 kr. / m²

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

62.650.000

Fasteignasala

RE/MAX

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 1 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

RE/MAX og Jón G. Sandholt kynnir í einkasölu bjarta og fallega 4 herbergja endaíbúð á 2.hæð við Álfaskeið 70, Hafnarfirði. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 110,8 fm og tilheyrir eigninni bílskúrsréttur. Eignin telur forstofu, gang/hol, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og sérgeymslu í sameign.

ATH eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða [email protected].

Nánari lýsing:

Forstofa er með parket á gólfi.
Gangur/hol er með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi. Útgengt er úr stofu út á svalir.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu, flísar á milli innréttinga, eldavél, vifta, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg hvít innrétting, baðkar með sturtu, upphengt salerni og handklæðaofn. Þvottavél og þurrkari inn af baðherbergi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfum.
Sérgeymsla er staðsett í sameign á neðri hæð.
Sameiginlegt þvottahús staðsett á neðri hæð, í dag er þvottavél og þurrkari inn af baðherbergi.
Hjóla- og vagnageymsla er einnig í sameign.

Það sem hefur verið endurnýjað skv. seljanda er:
Ný rafmagnstafla í íbúð og í sameign (2020)
Nýr dyrasími með myndavél (2020)
Skipt um eldhúsinnréttingu (2014)
Baðherbergi standsett (2017)
Ný blöndunartæki í sturtu (2021)
Skipt um vask, blöndunartæki, borðplötu og eldavél (2021)


Þetta er falleg og rúmgóð eign á góðum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla og aðra þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Jón G. Sandholt, löggiltur fasteignasali, í síma 777-2288 eða [email protected].

----------------------------------------------------------------------- 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila  
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati 
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar 
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband