Söluauglýsing: 1241568

Hjallalaut 11

230 Reykjanesbær

Verð

Tilboð

Stærð

235.5

Fermetraverð

-

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

119.100.000

Fasteignasala

PRODOMO fasteignasala

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 44 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt einbýlishús ásamt bílskúr að Hjallalaut 11 í Keflavík.
Sérstaklega stílhrein og vönduð eign á frábærum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og flesta þjónustu.

** 4 svefnherbergi
** 2 baðherbergi
** sérsmíðaðar innréttingar
** verönd með heitum potti

Nánari lýsing:
Forstofa
með flísum á gólfi. Þar er góður skápur.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými, þar eru gólfsíðir gluggar og útgengt á verönd. Stílhrein svört innrétting í eldhúsi með góðu skápa og vinnuplássi, veglegur steinn á innréttingu, span hellugorð og innbyggð uppþvottavél.
Gestasalerni með flísum á gólfi og veggjum, svört innrétting og upphengt salerni.
Herbergisgangur með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Góð innrétting, upphengt salerni, baðkar og sturta.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi. Inn af því er fataherbergi og baðherbergi. Í fataherbergi eru veglegar innréttingar. Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, upphengdu salerni og sturtu.
Herbergin þrjú eru rúmgóð, parket er á gólfum og fataskápur í tveimur þeirra.
Þvottahús með flísum á gólfi. Innrétting með góðu skápaplássi þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Frá þvottahúsi er útgengt á baklóð.
Bílskúr með epoxy á gólfi og hurðaopnara. Inn af bílskúr er góð geymsla.

Alrými eignarinnar er opið og bjart. Öll rými eignarinnar eru rúmgóð. Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt, góð verönd með skjólveggjum og heitum potti. Innkeyrsla er hellulögð, þar er snjóbræðsla.

Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða [email protected]


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband