Söluauglýsing: 1240410
Heiðarás 13
110 Reykjavík
Verð
Stærð
Fermetraverð
Tegund
Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 56 daga.
- Dagsetning skráningar: 28.03.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: Fjarlægt þann 24.05.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Birtingartími: 56 dagar
Hversu lengi auglýsingin hefur verið / var inni.
Staðsetning
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Einstaklega glæsilegt og vel skipulagt 282,6 fm. einbýli með aukaíbúð á jarðhæð á þessum eftirsótta stað í Reykjavík. Frábært útsýni yfir borgina. 4 svefnherbergi í aðalíbúð. Stór verönd með heitum potti og stórar svalir. Eignin hefur mikið verið endurnýjuð á síðustu árum. Stórt hellulagt bílaplan með hitalögn undir. Mikið geymslupláss auk bílskúrs. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 282,6 fm og skiptist þannig að neðri hæðin er 101 fm, efri hæðin 138 fm, bílskúrinn 33,5 fm. og geymsla 10,1 fm.
Stórglæsilegt og mikið endurnýjað hús teiknað af Kjartani Sveinssyni með einstöku útsýni og á frábærum stað í Árbænum. Stutt í alla þjónstu og samgöngur. Árbæjarlaug í göngufæri og stutt í Elliðárdalinn, Rauðavatn og aðrar gönguleiðir. Leikskólinn Heiðaborg við enda götunnar og jafn langt í Selásskóla og Árbæjarskóla. Rólegt hverfi og mjög veðursælt.
Nánari upplýsingar veitir:
Þórarinn Thorarensen lögg. fasteignasali s. 770-0309 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Komið er inn í anddyri með innfelldum skápum. Þar er góllfhiti og mustang flísar sem voru settar í kringum 2008.
Á hægri hönd er svo gengið inn í 2ja herbergja mjög bjarta og fallega íbúð. Þar er eldhús, stofa og borðstofa í opnu rými. Cat5 tengi í stofu. Gott herbergi með mjög miklu skápaplássi (allar innréttingar endurnýjaðar 2008). Baðherbergi er í íbúðinni með rúmgóðri sturtu og innaf baðherbergi er góð geymsla þar sem hægt er að vera með þvottavél og þurrkara. Geymslan var innréttuð sem sánaklefi þegar húsið var byggt. Það er líka hægt að nota íbúðina sem heild af öllu húsinu þar sem sameiginlegur inngangur er í húsið. Einnig er hægt að stúka íbúðina alveg af og hafa sérinngang þar.
Á vinstri hönd í anddyri er svo mjög stórt herbergi með mikilli lofthæð. Þar er fataskápur. Cat 5 tengi. Hægt væri að hafa þar golfhermi eða gera bíósal svo eitthvað sé nefnt. En einnig væri hægt að útbúa auka baðherbergi og svefnherbergi.
Í dag er hurð úr anddyrinu upp á aðra hæð. En mjög auðvelt er að fjarlægja hana ásamt uppslegnum veggjum til að opna andyrið aftur eins og það var upprunalega.
Undir stigaholi eru veggfastir skóskápar. Í stigaholi á vinstri hönd er svo gengið inn í bílskúr sem er mjög rúmgóður. Hann er notaður sem bílskúr og þar er hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Það er búið að leggja 3ja fasa rafmagn að rafmagnstöflu. Ef farið er í að skipta út rafmagnstöflunni og innleiða 3ja fasa þá virkar hleðslustöðin líka sem hraðhleðsla. Snjallmælar eru komnir í rafmagnstöflu og á heitavatn. Ný bílskúrshurð var sett 2020. Innrétting með vaski og útifataskápur.
Gengið er upp stiga sem í dag er parketlagður en til stóð að skipta út parketi á stigann sem er til. Seljandi hefur ákveðið að sleppa þeirri framkvæmd svo að kaupandi geti þá ákveðið sjálfur hvað hann vill setja á stigann.
Efri hæð:
Þegar komið er upp stigann tekur við opið rými á hægri hönd þar sem sjónvarpsrými, stofa ,borðstofa og eldhús mætast. Stórkostlegt útsýni úr stofu og borðstofu þar sem hægt er að fara út á svalir. Í þessu rými ásamt stigaholi er philips hue lýsing sem var sett árið 2020. Gólfhiti (2022) er á allri efri hæð að undanskilinni borðstofu, eldhúsi og þvottahúsi en gert er ráð fyrir því að hægt sé að leggja hann. Hægt er að setja upp snjallstýringu á gólfhitakerfið. Nýtt parket og hurðir á allri efri hæð 2022. Eldhúsinnrétting síðan 2008 og gólfefni á eldhúsi náttúrusteinn. Loft í opna rými var málað árið 2020.
Þegar komið er úr eldhúsi er þvottahús á hægri hönd með glugga. Innrétting frá 2008. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð. Þegar gólfhiti var lagður var sagað í plötu og lagt fyrir nýjum neysluvatnslögnum sem eru þá til staðar seinna meir fyrir þvottahús og eldhús. Þær eru í þvottahúsinu.
Til vinstri þegar komið er á efri hæð er svefnherbergjagangur. Þar var hurð en hún var fjarlægð og opið opnað til að hleypa meiri birtu og hafa rýmið opnara.
Á vinstri hönd á svefnherbergisgangi er baðherbergi sem var alveg endurnýjað 2015-2016. Þar er mjög stór og breið walk inn sturta. (Sturtan er æði – rosa kraftur í henni). Við hliðina á spegli eru snagar og þar er hiti í veggnum sem flýtir fyrir þurrkun á handklæðum og gefur il ásamt gólfhita. Baðherbergið er með innfelldri led lýsingu sem öll er dimanleg. Allar lagnir í baðherberginu voru endurnýjaðar.
Að auki eru 4 svefnherbergi á ganginum. Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi. Í dag eru 2 barnaherbergi með skápum og eitt skrifstofuherbergi sem er ekki með skápum. Hægt er að breyta stærð aftur. Öll herbergin nema hjónaherbergið eru með Cat 5 tengi. Öll herbergin eru með innfelldri lýsingu sem er dimmanleg. Planið var að setja Hue lýsingu þar líka. Þegar spennar færu að gefa sig.
Á svefnherbergisgangi er svo aðgengi upp á 60 fm háaloft sem var útbúið 2015-2016. Þar var einnig sett ný einangrun í þak. Mjög góður frágangur og góð lýsing.
Við enda svefnherbergisgangs er svo svalahurð út á pall og garð. Það er verið að bíða eftir nýrri hurð sem á að koma í apríl. En það verður ál/tré útidyrahurð sem verður læsanleg með lykli og með opnanlegum glugga fyrir ofan hurðina. Vönduð og falleg hurð. Þarna er greið og mjög stutt leið í heitapottinn sem er þarna beint fyrir utan.
Allar innréttingar sérsmíðaðar hjá Fagus 2008 en baðherbergi uppi 2015
Sonos hátalarar í stofu og við heitapott fylgja
Öll ljós fylgja
Efri hæð öll máluð 2022 nema loft í svefnherbergjum, þvottahús og baðið málað síðast 2015.
Helstu endurbætur að utan:
Húsið var múrviðgert að utan 2020 og málað 2021, líka gluggar að utan og þakkantur.
Þakkantur og allar þakkrennur og niðurföll endurnýjað 2008.
Nýtt járn á þak 2016
Lýsing í þakskyggni og útistaurar 2008. Lýsing í þakskyggni er stýrt með philips hue. Útistaurar eru á klukku.
Kubbaljós á húsi 2021
Svalahandrið endurnýjað 2022.
Heitavatnspottur nýr (2021 tekinn í notkun) þar er sonos hátalari og philips hue lýsing undir potti – dimmanleg. Snjallstýring á heitapotti.
Garður 2008 allur endurnýjaður. Skipt um jarðveg og gras og einnig settar alls konar plöntur/gróður. Settar steinhleðslur. Sett hellulögn meðram öllu húsi og fyrir framan hús allt með hita.
Neðri pallur, stigi, stigahandrið og steypt viðbygging 2009
Nýji pallur, skjólveggir og geymsluskýli með hurð 2021-2022. Þetta er ósamþykkt. Það eru komnar einhverjar rýmri heimildir um viðbyggingar í Árbæ en hefur ekki farið í ferli. Það á eftir að klára frágang á geymsluskýilnu og á því svæði. Þetta selst í því ástandi sem það er. Þarna er tilvalið að geyma golfbíl, hjól, dekk, garðverkfæri ofl.
Nýleg harðviðarhurð við aðalinngang, lökkuð 2021.
Búið er að skipta um gler í gluggum í stofu 2021. Ekki efri gluggum. Líka búið að skipta um gler í miðju glugga í borðstofu 2019 og svo í svefnherbergi í íbúð niðri 2021. Það var líka skipt um öll gler á efri hæð í hjónaherbergi og allri hlið sem snýr út í garð í kringum 2008.
Það er kominn tími á glugga í eldhúsi og þeim herbergjum sem eru á sömu hlið.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA
Ljósmyndir
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
- Eignanúmer: 1240410
Einnota auðkenni fyrir hverja eign. - Verð: 189.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum. - Brunabótamat: 114.650.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati. - Áhvílandi: 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni. - Fasteignamat: 141.050.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar. - Verð á fermetra: 671.975
Verð eignarinnar á hvern fermetra. - Fermetrar: 282.6
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum. - Dagsetning skráningar: 28.03.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út. - Staða auglýsingar: 24.05.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð. - Skráningardagur: 28.03.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega. - Póstnúmer: 110
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett. - Heimilisfang: Heiðarás 13
Fullt heimilisfang eignarinnar. - Tegund eignar: einb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús. - Byggingarár: 1981
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð. - Herbergi: 9
Heildarfjöldi herbergja í eigninni. - Svefnherbergi: 6
Fjöldi svefnherbergja í eigninni. - Stofur: 0
Fjöldi stofa í eigninni. - Salerni: 2
Fjöldi salerna í eigninni. - Inngangur: Sérinngangur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar. - Bílskúr: 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt). - Heitur pottur: 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt). - Verönd: 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt). - Auka íbúð: 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt). - Sýnileg: 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt). - Heiti heimilisfangs: Heiðarás
Heiti eignar eða byggingar. - Húsnúmer: 13
Húsnúmer eignarinnar.