Söluauglýsing: 1240400

Dælisárvegur 5

276 Mosfellsbær

Verð

23.700.000

Stærð

53.2

Fermetraverð

445.489 kr. / m²

Tegund

Sumarhús

Fasteignamat

21.250.000

Fasteignasala

Hallir Fasteignamiðlun

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 35 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Hallir Fasteignamiðlun kynnir í einkasölu: Sumarbústað á eftirsóttum stað við Meðalfellsvatn í Kjós.  Húsið er timbuhús og er á þremur pöllum. Húsið er 53,2 fm skv. skráningu HMS og er húsið vel staðsett efst í lóðinni. Pallur er í kringum húsið. Byggingarár skv HMS er skráð árið 1999 en byggt var við eldra hús sem er frá um 1974.
Húsið er á þremur pöllum. Komið er inn í litla forstofu. Við tekur salerni, eldhús, og stofa. Gengið er niður í herbergi á neðri palli og gengið upp í herbergi á efri palli. Öll gólf eru parketlögð. Furupanell á öllum veggjum.
Fallegt útsýni er til vesturs. Falleg, skjólgóð lóð með mikum trjágróðri. Frábær staðsetning aðeins um 40 mínutúr frá Reykjavík.


Nánari lýsing:
Forstofa: Gengið beint inn af palli á litla forstofu
Baðherbergi: Með salerni og vaski. Gluggi er á baðherbergi
Svefnherbergi: á efri og neðri palli.
Eldhús: Furuinnrétting með sambyggðum ofni og helluborði
Stofa: Rúmgóð stofa með góðum glugga. 
Geymsla: Lítil geymsla, aðgengileg á norðurhlið hússins

Lóð: Lóðin er leigulóð og miklum trjágróðri hefur verið gróðursettur í gegnum árin á spildunni. Á lóðinni er geymsluskúr og lítill kofi.
Hitaveita er komin upp við húsvegg.

Borið var á húsið að utan og glugga sumarið 2023

Nánari upplýsingar veitir Heiða, löggiltur fasteignasali í síma 779-1929 og á netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hallir Fasteignamiðlun því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband