22.03.2024 1238063

Söluskrá FastansKópavogsbraut 3

200 Kópavogur

hero

13 myndir

59.900.000

937.402 kr. / m²

22.03.2024 - 7 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 29.03.2024

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

63.9

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

[email protected]
820-2222
Svalir
Hjólageymsla
Geymsla

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignasalan TORG kynnir í einkasölu: Einstaklega björt,falleg og vel skipulögð tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð í fallegu og vel byggðu fjölbýli við Kópavogsbraut í Kópavogi. Alls er íbúðin skráð 63,9 fm og skiptist í forstofu, svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, aðalrými með stofu, borðstofu, og eldhúsi. Útgengt úr stofu á rúmgóðar suður svalir.  Húsið er byggt árið 1960 en í lok árs 2011 var ráðist í gagngerar endurbætur á húsinu að utan sem innan. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með góðum skáp.
Stofa:  Stofa, borðstofa, og eldhús  mynda  eitt stórt og bjart alrými með miklum gluggum og úr stofu er gengið út á góðar austur svalir. Harðparket er á gólfi.
Eldhús: Er með fallegri hvítri innréttingu, háfi, keramik helluborði og ofni. Falleg eyja skilur að borðstofu og eldhús. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi: Rúmgott með góðum skápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með góðri innréttingu, stórri sturtu með glerskilrúmi, handklæðaofni og upphengdu salerni. Einnig er þar aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í lokuðum skáp.
Geymsla: Góð geymsla er í sameign ásamt, þvottahúsi og sameiginlegri vagna og hjólageymslu.

Kópavogsbraut 3 er fjölbýlishús með 23 íbúðum. Húsið er kjallari og fjórar hæðir. Húsið er steinsteypt og skráð byggingarár er 1960. Húsið hlaut gagngerar endurbætur árið 2011-2012, ný hæð (4. hæð) var byggð ofan á húsið og þar með nýtt þak. Húsið er klætt með viðhaldsléttri álklæðningu nema efsta hæðin sem er timburklædd. Hiti er á sameiginlegum mæli fyrir húsið og greitt samkvæmt hlutfallstölu en rafmagn er á sérmæli fyrir eignarhlutann auk hlutdeildar í rafmagni í sameign samkvæmt hlutfallstölu. Sorp- og hjólageymsla er í skúr á lóð (53,3 fm). Hellulögð stétt með snjóbræðslu. 30 bílastæði eru á lóðinni. 

Samantekt: Hér er um að ræða mjög fallega og vel skipulagða íbúð á góðum stað í Kópavogi. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem verslanir, skóla, sundlaug og útivistarsvæði. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

Pnr.HeimilisfangKaupverðStærðFermetraverðTegundFastan.Dags.Noth.
20.600.000 kr.64.20 320.872 kr./m²206336921.05.2012

20.882.000 kr.63.90 326.792 kr./m²232512931.05.2012

20.576.000 kr.64.30 320.000 kr./m²232512412.06.2012

20.800.000 kr.64.30 323.484 kr./m²206336710.09.2012

30.400.000 kr.63.90 475.743 kr./m²232512912.08.2016

39.500.000 kr.63.90 618.153 kr./m²232512920.06.2018

40.700.000 kr.64.30 632.970 kr./m²206336722.01.2021

61.500.000 kr.63.90 962.441 kr./m²232512922.04.2024

62.000.000 kr.64.30 964.230 kr./m²206336726.04.2024

Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007

Sótt frá Þjóðskrá

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

Ekki tókst að sækja eignir.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband