21.03.2024 1237465
Skúlagata 40
101 Reykjavík
26 myndir
71.900.000
914.758 kr. / m²
21.03.2024 - 29 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 19.04.2024
1
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
78.6m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
1990Fasteignamat
59.250.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2003485Byggingarnúmer*
1016216Brunabótamat
38.150.000Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Árni Björn Erlingsson Lfs. og Fasteignaland ehf. kynna eignina Skúlagata 40a, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 04-02, fastanúmer 200-3531 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Birt stærð eignar er 78.6 fm. samkvæmt HMS.
Um er að ræða tveggja herbergja íbúð, eitt svefnherbergi, stofa og eldhús renna saman í eina heild, baðherbergi og þvottahús/geymslu. Eignin hefur verið meira og minna öll endurnýjuð að innan 2022 og var öll máluð af fagmönnum 2023. Allt hefur verið gert á vandaðan hátt, og má meðal annars nefna að sturtan inná baðherbergi er flísalögð þannig að það er enginn kantur sem þarf að stíga yfir til að auðvelda umgengni. Fallegt útsýni er frá íbúðinni og eru svalir yfirbyggðar og hægt að nota allt árið.
Öll aðstaða er til fyrirmyndar í þessu lyftuhúsi og húsvörður er í húsinu. Sameiginlegur samkomusalur er til staðar, með því sem þarf til að halda afmæli eða veislur, og er hægt að fá hann leigðann gegn vægu gjaldi. Og á jarðhæðinni er sameiginleg aðstaða með heitum potti og sauna fyrir íbúa. Bílakjallari er með aðstöðu til að þrífa og bóna bílinn.
Þessa íbúð má aðeins selja félagsmönnum í Félagi eldriborgara, sem eru 60 ára eða eldri. Félagsheimili Reykjavíkurborgar að Lindargötu 59, er bara í fimm mínútna fjarlægð, en þar er hægt að fá heitan mat í hádeginu og ýmsa aðra þjónustu sjá nánar hér https://reykjavik.is/lindargata-59
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Forstofa með parket á gólfi.
Eldhús: Góð innrétting með góðu borðplássi, keramik helluborð, bjart og vel skipulagt eldhús með parketi á gólfi.
Stofa: Með parket á gólfi, opin björt stofa sem er með útgengt út á lokaðar svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðum skápum, og parket á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með flísum í hólf og gólf. Sturtan er flísalögð þannig að það er enginn kantur sem þarf að stíga yfir til að auðvelda umgengni, salerni og falleg innrétting með góðu skápaplássi og handlaug.
Þvottaherbergi/geymsla: Er innan íbúðar og er virkilega vel skipulagt og gert ráð fyrir þvottavél og þurkara.
Bílakjallari: Gott stæði og sameiginleg þvottaaðstaða fyrir bílinn.
Gesta bílastæði: eru bæði fyrir framan og aftan húsið.
Stutt er í verslanir, veitingastaði og sundlaug.
Nánari upplýsingar veita:
Árni Björn Erlingsson löggiltur fasteignasali / s.898-0508 / [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1237465
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 71.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 38.150.000
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 59.250.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 914.758
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 78.6
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 21.03.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 19.04.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 21.03.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 101
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Skúlagata 40
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 1990
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 2
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 1
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 0
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Skúlagata
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 40
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
- ✅
Umsókn / FyrirspurnSamþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi og til að innrétta íbúð í rými 0203 í fjölbýlishúsi á lóð nr. 40 við Skúlagötu.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar.
- ❌
Umsókn / FyrirspurnNeikvætt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSpurt er um leyfi til að breyta skráningu á íbúðarherbergi, rými 09-0203, í íbúð, í húsi nr. 40 á lóð nr. 40-40B við Skúlagötu. Erindi fylgir afrit tölvupósta frá fyrirspurnaraðila ásamt myndum og skýrsla húsaskoðunar dags. 7. febrúar 2023.
Uppfyllir ekki ákvæði byggingarreglugerðar. Fundi slitið kl. 12:10 Nikulás Úlfar Másson Harri Ormarsson Sigrún Reynisdóttir Vala Ragna Ingólfsdóttir Vífill Björnsson Guðrún Ósk Hrólfsdóttir
Umsókn / FyrirspurnFrestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSpurt er um leyfi til að breyta skráningu á íbúðarherbergi, rými 09-0203, í íbúð, í húsi nr. 40 á lóð nr. 40-40B við Skúlagötu.
Óskað skal eftir íbúðaskoðun.
Umsókn / FyrirspurnFrestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSigrún G. Spurt er um leyfi til að breyta skráningu á íbúðarherbergi, rými 09-0203, í íbúð, í húsi nr. 40 á lóð nr. 40-40B við Skúlagötu.
Samanber leiðbeiningar á umsagnarblaði. 20 Ýmis mál
- ✅
Breyting inni- 0201 og 0202Samþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til þess að breyta innra fyrirkomulagi við baðherbergi og eldhús í íbúðum 0201 og 0202 á annarri hæð húss nr. 40 á lóðinni 40 - 40B við Skúlagötu.
- ✅
Nudd- og baðstofa 0201Samþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi fyrir minnháttar breytingu á innra skipulagi þannig að í stað nudd og hárgreiðslu verði nudd og baðstofa með veitingasölu í einingu 0201 í fjöleignahúsinu á lóð 40 við Skúlagötu. Meðfylgandi eru upplýsingar vegna samstarfssamnings og sameign fyrir eininguna frá aðlhönnuði. Meðfylgjandi er einnig pölvupóstur Guðmundar Kristjánssonar hrl. dags.28.5.2008. Sömu leiðis er meðfylgjandi uppdráttur, sem sýnir skiptingu húsnæðisins í samnýtiflöt og sérnýtiflöt tveggja fyrirtækja.
Nudd- og baðstofa 0201Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi fyrir minnháttar breytingu á innra skipulagi þannig að í stað nudd og hárgreiðslu verði nudd og baðstofa með veitingasölu í einingu 0201 í fjöleignahúsinu á lóð 40 við Skúlagötu. Meðfylgandi eru upplýsingar vegna samstarfssamnings og sameign fyrir eininguna frá aðlhönnuði. Meðfylgjandi er einnig pölvupóstur Guðmundar Kristjánssonar hrl. dags.28.5.2008
Nudd- og baðstofa 0201Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi fyrir minnháttar breytingu á innra skipulagi þannig að í stað nudd og hárgreiðslu verði nudd og baðstofa með veitingasölu í einingu 0201 í fjöleignahúsinu á lóð 40 við Skúlagötu. Meðfylgandi eru upplýsingar vegna samstarfssamnings og sameign fyrir eininguna frá aðlhönnuði.
Nudd- og baðstofa 0201Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi fyrir minnháttar breytingu á innra skipulagi þannig að í stað nudd og hárgreiðslu verði nudd og baðstofa með veitingasölu í einingu 0201 í fjöleignahúsinu á lóð 40 við Skúlagötu.
- ✅
Svalaskýli íb. 0602Samþykkt
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að gera svalaskýli á svölum íbúðar nr. 0602 í húsi nr. 40 á lóðinni nr. 40-40B við Skúlagötu. Erindinu fylgir yfirlýsing nokkurra íbúðareigenda og samþykki húsfélags frá 28. febrúar 2004. Jafnframt lagt fram bréf húsfélagsins dags. 8. mars 2004. Stækkun: 6,1 ferm., 16,5 rúmm.
Svalaskýli íb. 0602Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að gera svalaskýli á svölum íbúðar nr. 0602 í húsi nr. 40 á lóðinni nr. 40-40B við Skúlagötu. Erindinu fylgir yfirlýsing nokkurra íbúðareigenda og samþykki húsfélags frá 28. febrúar 2004. Jafnframt lagt fram bréf húsfélagsins dags. 8. mars 2004. Stækkun:
Svalaskýli íb. 0602Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að gera svalaskýli á svölum íbúðar nr. 0602 í húsi nr. 40 á lóðinni nr. 40-40B við Skúlagötu. Erindinu fylgir yfirlýsing nokkurra íbúðareigenda. Stækkun:
Svalaskýli íb. 0602Frestað
Byggingarfulltrúi | ReykjavíkSótt er um leyfi til að gera svalaskýli á svölum íbúðar nr. 0602 í húsi nr. 40 á lóðinni nr. 40-40B við Skúlagötu. Erindinu fylgir yfirlýsing nokkurra íbúðareigenda. Stækkun:
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).