13.03.2024 1233560

Söluskrá FastansSuðurgata 76

220 Hafnarfjörður

hero

37 myndir

109.000.000

567.118 kr. / m²

13.03.2024 - 2 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 15.03.2024

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

192.2

Fermetrar

Fasteignasala

Fasteignamarkaðurinn

[email protected]
5704500
Bílskúr
Kjallari
Svalir
Geymsla
Hleðslustöð

Staðsetning

Auglýsing

Tenglar

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Fasteignamarkaðurinn kynnir í sölu virkilega bjarta og vel skipulagða 192,2 fm 5 herbergja efri sérhæð auk bílskúrs í fallegu og vel viðhöldnu tvíbýlishúsi á frábærum stað í Hafnarfirði. Eignin getur verið til afhendingar fljótlega.

Eignin verður sýnd miðvikudaginn 13. mars 2024 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Nánari lýsing
Sérinngangur er í íbúðina.
Forstofa / hol, flísalagt.
Stigi upp á efri hæð er breiður og bjartur með góðum gluggum, teppalagður.
Stigapallur, teppalagður og með fataskápum.
Samliggjandi borð- og setustofa í einu stóru opnu og björtu rými, parketlögðu og með útgengi á skjólsælar svalir. ( Möguleiki á svefnherbergi) 
Gestasnyrting, flísalagt gólf.
Eldhús er rúmgott og bjart með góðum gluggum, rúmgóðri borðaðstöðu og fallegum hvítum innréttingum með mosaik á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél.  Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp með klakavél.
Sjónvarpsstofa, parketlögð og opin við stofur. (Mögulegt að breyta í svefnherbergi.)
Herbergisgangur, parketlagður og með útgengi á sömu svalir.
Barnaherbergi I, parketlagt og með fataskápum.
Hjónaherbergi, parketlagt og með skápum.
Barnaherbergi III, parketlagt og með fataskápum.
Baðherbergi er rúmgott og með glugga. Flísalagt gólf og veggir, nýleg innrétting, flísalögð sturta og baðkar.
Þvottaherbergi með glugga, flísalagt og með góðri innréttingu.
10 fm sérgeymsla er á jarðhæð hússins.

Bílskúr er 26,2 fermetrar að stærð, með rafmótor á hurð, hita og rennandi vatni. Sér bílastæði fyrir framan bílskúr og hægt að setja upp rafhleðslustöð.
Húsið að utan hefur að sögn eiganda fengið gott viðhald, verið er að klára gluggaskipti á svefnherbergjum sem seljendur klára fyrir afhendingu.
Lóðin er rúmgóð og skemmtileg, sérafnotaflötur fylgir eigninni.

Þetta er fjölskylduvæn sérhæð á góðum stað í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla þjónustu, Suðurbæjarlaug,verslanir og veitingahús.

Nánari upplýsingar veitir Óskar Már Alfreðsson Lögg. fasteignasali, í síma  5704500 / 6158200, tölvupóstur [email protected].











 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Verðmat FastansVerðmat Fastans

Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006

Þinglýstir kaupsamningarÞinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingarEigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

FasteignaskráFasteignaskrá

Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra

010101

Íbúð á 1. hæð
172

Fasteignamat 2025

99.550.000 kr.

Fasteignamat 2024

98.550.000 kr.

010201

Íbúð á 2. hæð
192

Fasteignamat 2025

104.150.000 kr.

Fasteignamat 2024

103.150.000 kr.

Samskiptasaga byggingar

Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina

PóstlistiÁbendingarHafa samband