10.03.2024 1232311
636071 null
113 Reykjavík
0 myndir
118.500.000
636.071 kr. / m²
10.03.2024 - 12 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 22.03.2024
6
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
186.3m²
Fermetrar
Tegund
AnnaðByggingarár
-Fasteignamat
-Inngangur
2Fastanúmer*
-Byggingarnúmer*
-Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Eignamiðlun kynnir:
Mjög falleg og rúmgóð 186,3 fm íbúð á efstu hæð að Skyggnisbraut 30, 113 Reykjavík. Eignin er eina íbúðin á efstu hæðinni (6. hæð) og er lyfta upp ásamt góðum stigapalli fyrir framan íbúðina. Virkilega fallegt útsýni úr allri íbúðinni. Stórar 41,5 fm svalir í suðurátt. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og mjög stórar stofur í björtu alrými. Stór vinnueyja í eldhúsi, vandaðar innréttingar. Húsið var byggt árið 2016. Náttúra og aðgengi til að stunda fjölbreytta útivist er aðeins nokkrum skrefum frá húsinu. Tvö stæði fylgja í bílageymslu, merkt B25 og B26. Hverfi sem er að verða fullbyggð og aukin þjónusta á næsta nágrenni.Ekki verða haldin opin hús á þessari eign. Áhugasamir bóki einkaskoðun.
Nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma: 839-1600 eða [email protected]
Íbúðin er eina íbúðin á sjöttu hæð. Þegar komið er upp er rúmgóður pallur fyrir framan innganginn sem nýtist eingöngu íbúðinni. Ljóst harðparket er á allri íbúðinni nema votrýmum.
Komið er inn í forstofu með skáp og fínu rými. Þaðan inn stuttan gang þar sem eru þrjú svefnherbergi, fjórða svefnherbergið inn af stofu. Hjónaherbergið er mjög rúmgott eða tæplega 20 fm með góðum fataskápum. Hin herbergin minni 9,2 - 12,4 fm með fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð sturta og innréttuð þvottaaðstaða með skápum og aðstöðu fyrir bæði þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Einnig er gestasnyrting á gangi við eldhús/stofu sem flísalagt er líka í hólf og gólf.
Eldhúsið er með innréttingu á einum löngum vegg, góðu geymsluplássi og eyju með helluborði ásamt gufugleypi með ljósi. Á eyjunni er setuaðstaða fyrir fjóra. Í eldhúsinu er bakaraofn í vinnuhæð og skúffur í allri neðri innréttingunni og eyjunni. Rúmgott er einnig fyrir eldhúsborð á eldhússvæði. Borðstofa við hliðina á eyjunni.
Rúmgott stofurými sem auðveldlega er hægt að skipta upp í tvær stofur. Útgengi út á svalir frá eldhúsi og stofu. Gluggar í stofu til suðurs og vesturs sem gera íbúðina mjög bjarta.
Einstaklega falleg eign með miklu útsýni í fjölskylduvænu hverfi sem hefur byggst upp á síðustu árum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ljósmyndir
Því miður eru engar myndir af eigninni. Þú gætir fundið myndir á öðrum auglýsingum sömu eignar.
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Engir þinglýstir kaupsamningar fundust á þessari eign
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1232311
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 118.500.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 102.580.000
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 0
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 0
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 186.3
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 10.03.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 22.03.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 10.03.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 113
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Skyggnisbraut 30
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : annad
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 0
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 2016
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 6
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 4
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 0
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : 2
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : 636071
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 0
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Ekki tókst að sækja eignir.
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina
Engin samskiptasaga fannst á þessari eign.
Byggir aðeins á útgefnum fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur á milli 1997 - 2024 ( júlí ).