Söluauglýsing: 1228425

Langalda 16A

850 Hella

Verð

49.900.000

Stærð

88.6

Fermetraverð

563.205 kr. / m²

Tegund

Rað/Par

Fasteignamat

41.200.000

Fasteignasala

Fannberg

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 47 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

RAÐHÚS Í BYGGINGU VIÐ LANGÖLDU 16A Á HELLU..

Skilalýsing 
Endaíbúð í fjögurra íbúða raðhúsi. Fullbúin eign.

Lóð og Teikningar:
Búið að skipta um jarðveg í bílaplani og setja í það mulning,  23.5 m2 pallur komin við hús og þökur á lóð og forsteypt ruslatunnuskýli án loka fyrir þrjár tunnur.  Allar teikningar liggja fyrir þ.e aðalteikningar, sökkulteikningar, burðarvirkisteikningar, glugga og hurðarteikningar, lagnateikningar og rafmagnsteikningar.

Sökklar: 
Sökklar gerðir samkvæmt teikningu  Járnabinding er 2x k12 efst og neðst í sökkli, einföld 6mm járnamottugrind og k10 kambstál í tengijárnum við plötu. Einangrun á innanverða sökkulveggi er 16kg/75mm plasteinangrun.  Steypa er af gerðinni S-250.

Botnplata:
Einangrun undir plötu er 16kg/ 100mm plasteinangrun.  Járnabinding er 6mm járnamottugrind.  Steypa af gerðinni S-250.  Botnplata er fínslödduð og svo þurrslípuð fyrir gólfefni.

Lagnir:
Skolp og regnvatnslagnir eru tengdar fráveitukerfi í götu.  Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu.  Rör í rör kerfi er fyrir neysluvatn undir gólfplötu . Hitakista er að gerðinni Danfoss sem og hitastýringarnar, hitakistan er að fullu frágengin.

Útveggir:
Útveggir eru byggðir upp úr styrkleikaflokkuðu timbri, 45x145mm og klæddir með 9mm krossvið að utan til stífingar.  Útveggjaklæðning er bárujárn.

Veggir á milli íbúða:
Brunaveggur á milli íbúða er byggður upp úr 2x 45x95mm timburgrind með loftrúmi á milli, einangraður með 95 mm þilull í hvorum vegg og klæddur með 2x 13mm gipsi beggja vegna íbúðamegin.

Þak og loft:
Þak er byggt upp úr kraftsperrum, klætt með borðvið. Á það kemur þakpappi og alozink bárujárn.

Þakskegg:
Þakkanturinn er komin, undirklæðinig er úr timbri.  Rennur eru innbyggðar í þakskegg og eru heitgalvinseraðar og húðaðar með polyester lakki, tengdar fráveitukerfi í götu. Niðurfallsrör eru úr sama efni.  Flastningar eru yfir rennum og á þakkanti.

Gluggar og hurðir:
Gluggar og hurðir eru frá Gluggatækni hvítir að lit, timbur/ál.

Loftræsikerfi:
Vélræn loftræsing er úr þeim rýmum íbúða sem þarf samkvæmt reglugerð, þ.e. úr gluggalausum rýmum og eldhúsum sem eru of langt frá opnanlegum fögum.  Loftræsilagnir ganga upp úr þaki og þar er blásari staðsettur.  Loftræsiventill er út úr vegg í stofu.

Opinber gjöld:
Gatnagerðargjöld eru að fullu greidd, þ.a.s. Gatnagerð, byggingaleyfisgjald og holræsigjald.  Inntaksgjöld rafmagns, hita og vatnsveitu eru greidd. Skipulagsgjald kemur til greiðslu síðar og er ógreitt við afhendingu, (kaupandi greiðir)

Milliveggir: eru úr blikkstoðum, klæddir með 12mm rakavörðum spónaplötum.  Loft klædd með hvítum loftaþiljum.  Glerþil afmarkar sturtu. Inn í sturtu verða settar flísar á vegg. Ílöng niðurföll eru í sturtu.  Innihurðir: eru yfirfelldar hvítar og frá viðurkenndum aðila.
Innréttingar úr Ikea komnar í þvottahús og eldhús.  Eldhúsinnrétting er hvítt með dökkri plötu, borðplata er smiðuð í Fanntófelli eins og allir sólbekkir.  Eldhústæki sem fylgja eru span helluborð (sem sett er í borðplötu)  Bakarofn með blæstri og örbylgjuofn
Innbyggð uppþvottavél.  Innbyggður ísskápur.  Lýsing er innfeld, led ljós eru í húsinu nema í þvottahúsi og minni svefnherbergjum, þar eru Led kúplar (ljós)  Einnig eru komin Led ljós undir skyggni(úti), eitt ljós yfir andyri og eitt ljós yfir hurð út úr stofu þau ljós eru
stillt eftir sólar úri sem er í töflu.  Í skyggni er einnig komin einn tengill að framan og einn tengill að aftan.  Allir veggir eru hvítt málaðir.  Anddyri, baðherbergi og þvottahús eru flísalögð en önnur rými eru með parketi. Tegund físa er (Sunstone Alof) tegund parkets er (Sardinia Eik).  Fataskápar eru komnir í herbergi, 2m í hjónaherbergi, 1m í barnaherbergi og 50.cm í herbergi.

Til áréttingar:
Hreinsa þarf reglulega úr  niðurföllum í sturtum. Gólfrist er tekinn upp og niðurfallshólf tekið upp og hreinsað.  Í nýjum iíbúðum er byggingarraki.  Því er nauðsynlegt að loftræsta meira en ella fyrsta árið eftir að flutt er í nýja íbúð.  Nýjustu þéttilistar á gluggum og hurðum geta gert íbúðina mjög þétta.  Myndist þéttiraki innan á gler (vegna kulda ofl.) er mjög mikilvægt að lofta út og þurrka það vatn sem sest í glugganum, svo að það valdi ekki skemmdum á honum.  Smyrja verður útihurða-, glugga- og svalahurðaskraá a.m.k. einu sinni á ári með þunnri olíu.

Verð á íbúð 49.900.000.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: [email protected]

Ljósmyndir

Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband