Söluauglýsing: 1223351

Tjaldhólar 3

800 Selfoss

Verð

78.800.000

Stærð

156.8

Fermetraverð

502.551 kr. / m²

Tegund

Rað/Par

Fasteignamat

79.250.000

Fasteignasala

Fasteignasalan TORG

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 1 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

MATTHILDUR SUNNA LGFS OG TORG FASTEIGNASALA KYNNA Í EINKASÖLU: Fjögurra herbergja, 156,8 fm parhús við Tjaldhóla 3, Selfoss. Húsið skiptist í anddyri, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr með geymslu inn af. Einnig er geymsluloft yfir hluta af bílskúr. Pallur út frá stofu, 26,0 fm. Stutt er í náttúru og fallegar gönguleiðir ásamt allri þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Matthildur Sunna Þorláksdóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 690-4966 eða [email protected].

Nánari lýsing:

Komið er inn í anddyri með góðu skápaplássi, þaðan er gengið inn á gang sem tengir rými húss, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr.
Eldhús er með nýlegri, hvítri og ljósri viðarinnréttingu og ljósyrjóttri borðplötu. Bakaraofn er í vinnuhæð.
Stofa er björt og með útgengi á pall til suðausturs.
Hjónaherbergi er rúmgott, með viðarlituðum fataskápum á heilum vegg.
Barnaherbergin tvö eru einnig rúmgott með viðarlituðum fataskápum.
Baðherbergi er með hvítri innréttingu og efri skápum, hvítri borðplötu og flísalagt í hólf og gólf með hvítum og brúnum flísum. Sturta með skilrúmi úr gleri og baðkar. Salerni er vegghengt og handlaug í borði.
Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús. Bílskúr er flísalagður, með rafmagns hurð og geymslulofti yfir hluta. Geymsla með útgengt í garð er inn af bílskúr.
Flísar eru á öllum rýmum húss.
Bílastæði var hellulagt í nóvember 2023. Hellur eru frá Steypustöðinni og undir er hitalögn með lokuðu kerfi og frostlegi.
Tunnuskýli var gert á sama tíma, einnig frá Steypustöðinni.
Húsið er vel staðsett og stutt er í skóla og leikskóla, ásamt allri helstu þjónustu.


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,-. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á. 
 
TORG fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.
 

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband