14.02.2024 1220954
Jöfursbás 5
112 Reykjavík
10 myndir
51.500.000
909.894 kr. / m²
14.02.2024 - 16 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 01.03.2024
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
56.6m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2024Fasteignamat
-Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2530325Byggingarnúmer*
1165282Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Ekki tókst að greina fasteignasölu.
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
* SJÁVARSÝN
* AUKIN LOFTHÆÐ Í ÍBÚÐUM
* SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR SEM NÁ TIL LOFTS
* HITI Í ÖLLUM GÓLFUM
* GÓLFSÍÐIR GLUGGAR
* QUARTZ STEINN Á BORÐPLÖTUM OG UNDIRLÍMDIR VASKAR
* SNJÓBRÆÐSLUKERFI Í GÖNGUSTÍGUM MEÐ FALLEGRI NÆTURLÝSINGU
* SPENNANDI UMHVERFISSKIPULAG Í NÝJU HVERFI
Jöfursbás 5D, Reykjavík - íbúð 0302. 2ja herbergja íbúð íbúð 56,6fm. á þriðju hæð, þar af geymsla 5,9fm. (merkt 0005). Íbúðin er skemmtilega hönnuð með góðu svefnherbergi. Gólfhiti í öllum gólfum.
Svalir til suðurs. Innréttingar sérsmíðaðar frá Voke lll og ná til lofts.
Íbúðin er með aukinni lofthæð um 280cm.
Innanhúss hönnuður hefur komið að hönnun allra íbúða en í þeim má finna innréttingar sem eru sérsmíðaðar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsum og böðum. Flísar á votrýmum er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.
Lýsing íbúðar:
Forstofa með fataskáp sem nær til lofts
Eldhús með vandaðri innréttingu sem nær til lofts. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél. Innrétting er vönduð með Quartz stein á borðplötum.
Stofa með góðum glugga og útgengt á suður svalir.
Baðherbergi flísalagt 60x60cm ljósgráum flísum frá EBSON bæði gólf og hluti veggja, með vandaðri innréttingu með Quartz stein á baðinnréttingu frá Technistone. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Svefnherbergi er með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Geymsla sér merkt íbúð í kjallara.
Hjóla-og vagnageymsla í sameign.
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Allir innviðir í hverfinu sterkir þ.m.t. skólar, leikskólar, verslanir og hvers konar önnur þjónusta í næsta nágrenni.
Leiðakerfi strætó tengist Gufunesi.
Allar upplýsingar á: www.gufunesid.is
Íbúðirnar í húsinu eru samtals 26 talsins í tveimur stigahúsum, mjög fjölbreyttar 2-5 herbergja. Stærðir frá 55 fm-180 fm. Næg stæði fyrir utan hús.
Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.
Hafið samband við eftirfarandi fasteignasala til að skoða:
Vilborg Gunnarsdóttir lgfs., s. 891-8660 eða [email protected]
Guðný Ösp Ragnarsdóttir lgfs., s. 665-8909 eða [email protected]
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir lgfs., s. 856-3566 eða [email protected]
Kristín Einarsdóttir lgfs., s. 894-3003 eða [email protected]
Oscar Clausen lgfs., s. 861-8466 eða [email protected]
Agnar Agnarsson lgfs., s. 820-1002 eða [email protected]
Aðalsteinn Bjarnason lgfs., s. 773-3532 eða [email protected]
Margrét Rós Einarsdóttir lgfs., s. 856-5858 eða [email protected]
Sölvi Þór Sævarsson lgfs., s. 618-0064 eða [email protected]
Hrannar jónsson lgfs., s. 899-0720 eða [email protected]
NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af ARKÞING Arkitektum. Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.
HÚSIÐ: Húsið er klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR: Aukin lofthæð í flestum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar víða. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III
Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG. Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led, Veggofn.
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless). Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe.
BÍLAKJALLARINN OG GEYMSLUR: Bílastæði fylgir flestum íbúðum og góðar geymslur.
SAMEIGINLEGUR GARÐUR: Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu.
AFHENDING: Fyrstu íbúðir eru til afhendingar í apríl 2024.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
loading
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1220954
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 51.500.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 0
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 909.894
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 56.6
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 14.02.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 01.03.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur :
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 112
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Jöfursbás 5D - íb. 302
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2024
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 2
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 1
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Jöfursbás
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 5
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina