13.02.2024 1220297
Kjarnagata 55
600 Akureyri
14 myndir
81.900.000
699.402 kr. / m²
13.02.2024 - 10 dag á Fastanum - Fjarlægt þann 23.02.2024
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
117.1m²
Fermetrar
Tegund
FjölbýliByggingarár
2023Fasteignamat
26.100.000Inngangur
SameiginlegurFastanúmer*
2500365Byggingarnúmer*
1162893Brunabótamat
-Verðmat Fastans
Reiknar verðmat...
Staðsetning
Tenglar
Lýsing
Lýsing á eigninni frá fasteignasölu
Kjarnagata 55 - 57 er nýtt fjölbýlishús í smíðum sem verður afhent vor 2024. Íbúðirnar eru tveggja til fjögurra herbergja, allar íbúðir hafa svalir til suð-vesturs og sérgeymslu í sameign. Eignunum fylgir stæði í bílakjallara þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla við hvert stæði. Byggingaraðilinn, B.e húsbyggingar efh er vandaður og traustur byggingaraðili með mikla reynslu í byggingariðnaði.
Kjarnagata 55 Íbúð 201, Hagahverfi 600 Akureyri.
3-4 herbergja 117 fm íbúð á 2.hæð ásamt bílastæði í bílageymslu
Nánari upplýsingar um eignina má sjá hér: https://www.behus.is/k55-57-201
Lýsing: Íbúðin er þriggja til fjögurra herbergja og samanstendur af; forstofu, baðherbergi, þvottaherbergi, eldhúsi, stofu, hjónaherbergi og einu eða tveim barnaherbergjum - Innganga í íbúðina er af lokuðum sér svalargangi.
Eigninni fylgir hluti í sameign, samkvæmt kaflanum um sameign. Í bílgeymslu fylgir eigninni eitt bifreiðastæði merkt B-28.
Birt flatarmál séreignar er; Íbúðarrými 108,2 m². Geymsla 8,9 m². Eign samtals 117,1 m².
Afhending Vor 2024
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem lagt verður á eignina eftir lokaúttekt
Kjarnagata 55-57 - Skilalýsing Skilalýsing
Upplýsingar í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Leitast verður við að halda a.m.k. sambærilegum gæðum byggingarhluta og íhluta, breytist þeir á byggingartíma.
Hönnun
Hönnun er unnin af teikni- og verkfræðistofunni Opus ehf. Hönnun raflagna er unnin af Raftákn ehf.
Kjarnagata 55-57 er tvö hús á sameiginlegum kjallara, annars vegar á 19 íbúða hús á fjórum hæðum, og hinsvegar 12 íbúða hús á sex hæðum, auk kjallara og bílageymslu. Íbúðunum fylgir sameiginleg hjóla og vagnageymsla í kjallara, þar sem hver íbúð verður líka með sér geymslu. Í kjallara verða einnig tæknirými og aðstaða fyrir ræstingu. Í bílageymslu verða 30 bílastæði. Íbúðunum öllum fylgja opnar svalir. Svalagangar eru við inngang íbúða.
Frágangur utanhúss
Útveggir: Allir útveggir hússins eru einangraðir að utan með 100mm steinull. Húsið er klætt að utan með lituðu áli, láréttri báru og sléttum plötum. Á svölum og svalagöngum eru veggir klæddir með viðarklæðningu og/eða sléttum álplötum, samkvæmt teikningu.
Gluggar og hurðir: Allir gluggar og hurðir íbúða eru ál/tré gluggar frá danska framleiðandanum Ideal Combi, af gerðinni Futura+, allir gluggar og hurðir eru með tvöföldu sólstopp gleri (suncool 50/25).
Þak: Loftaplata í Kjarnagötu 55 og yfir 3ju hæð í Kjarnagötu 57 er steypt. Þak er viðsnúið, með tvöföldu lagi af heilbræddum pappa á slípaðan og grunnaðan steininn. Ofan á pappan kemur XPS einangrun hulin með möl.
Þak á Penthous íbúðum í Kjarnagötu 57, er CLT með ábræddu rakavarnarlagi, ofan á það kemur 160 mm. steinull og tvöfalt lag af þakdú.
Svalir: Svalagólf er klætt með pallaefni, handriði er samkvæmt teikningu.
Svalgangar: Snjóbræðslukerfi á svalagöngum. Í kjarnagötu 57 eru þeir hellulagðir með gúmmíhellum og glerlokun er á svalagangi. Í kjarnagötu 55 eru svalagangar klæddir með pallaefni og svalaskjól kemur ofan á handriði.
Lóð: Stéttar við innganga eru steyptar með snjóbræðslukerfi, bílastæði eru malbikuð. Lóð er þökulögð í samræmi við teikningar. Lóð yfir bílageymslu er þökulögð, og handriði samkv. teikingum. Engar aðrar girðingar né annar gróður fylgir.
Loftræsting: Vélrænt útsog er frá baðherbergi/þvottahúsi þar sem það á við samkv. teikningum.
Djúpgámar: Sorpgerði með djúpgámum er á lóð. Með tveimur tvískiptum 5m2 gámum fyrir almennt og flokkað sorp, og einum 800 lítra fyrir lífrænt sorp.
Frágangur innanhúss
Sameign: Gólf í kjallara í hjóla- og vagnageymslu er steypt og málað. Gólf og Stigi í stigahúsum eru steypt og flísalögð/teppalögð. Stigahús og veggir í sameign eru málaðir í lit völdum af hönnuði hússins.
Bílageymsla: Gólf í bílageymslu eru steypt, og verður frárennsli hitaveitu steypt i gólfið til upphitunar. Gólf verða ómáluð fyrir utan merkingar á bílastæðum. Rafmagnstengill (13 ampera, einfasa) til bílhleðslu verður við öll stæði í bílageymslu. Aðstaða til bílaþvotts verður í bílageymslu.
Lyftur: Lyftur eru í húsinu frá viðurkenndum framleiðanda. Útveggir: Allir útveggir eru sandsparslaðir og málaðir.
Innveggir: Allir innveggir/léttveggir eru klæddir tvöföldu gipsi á stálstoðum, sparslaðir og málaðir.
Loft í íbúðum: Loft eru sandspörsluð og máluð.
Gólf í íbúðum: Burðarplata er steypt þar sem einangrun og hitalögn er lögð ofaná aður en sjálf gólfplatan er steypt. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun milli hæða. Harðparket er á gólfum íbúða, flísar eru á gólfum baðherbergis, þvottahúss og forstofu.
Pípulögn: Gólfhitakerfi er í öllum íbúðum, neysluvatns- og frárennsislagnir eru lagðar samkv. verkfræðiteikningum.
Raflögn: Raflögn er fullfrágengin, ljósakúplar eru á baði, þvottahúsi og geymslu. Innfeld lýsing er í eldhúsinnréttingu. Innfelt ljós er í spegli á baði. Önnur ljós fylgja ekki innan íbúðar. Öll lýsing í sameign verður fullbúinn. Útiljós eru á svalagöngum og svölum. Við innganga hússins verður útilýsing. Reykskynjarar eru í öllum íbúðum og sameign samkv. teikningu. Mynd-dyrasími er í öllum íbúðum.
Innréttingar og skápar: Innréttingar, í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi eru frá danska framleiðandanum HTH, samkv. teikningu framleiðana. Skápar eru í forstofu, hjónaherbergi og barnaherbergjum samkv. teikningum. Yfirborð allra innréttinga er úr harðplasti/sprautulakkað. Harðplast er á borðplötum.
Eldhús: Með eldhúsinnréttingu fylgir bakarofn, keramik helluborð og háfur frá AEG. Gert er ráð fyrir plássi fyrir uppþvottavél. Uppþvottavél fylgir ekki.
Baðherbergi: Veggir á baðherbergi sem mætast við sturtuhorn eru flísalagðir. Veggir við inngangshurð og bakvið innréttingu eru máliðir. Klósettkassi er innbyggður. Glerhurðir eru við sturtu.
Þvottahús: Veggir í þvottahúsi eru máliðir.
Hreinlætistæki: Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru af viðurkenndri gerð og koma þar sem
teikningar sýna.
Hurðir: Innihurðir eru hvítar sprautulakkaðar. Handföng eru með stáláferð. Í sameign eru eldvarnahurðir (EI230-Cs).
Eldvarnir: Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki verður sett upp í hverri íbúð. Eldvarnahurðir eru í sameign samkv. Teikningu.
Annað: Í öllum íbúðum verður settur upp læstur lyfjaskápur.
Nánari upplýsingar veita:
Sigurpáll á [email protected] eða í síma 696-1006.
Helgi Steinar á [email protected] eða í síma 666-0999.
Sibba á [email protected] eða í síma 864-0054.
Ljósmyndir
Verðmat Fastans
Söguleg þróun á verðmati eignarinnar frá 2006
Þinglýstir kaupsamningar
Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð
Pnr. | Heimilisfang | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Tegund | Fastan. | Dags. | Noth. |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
82.900.000 kr. | 117.60 m² | 704.932 kr./m² | Fjölbýli | 2527457 | 11.03.2024 | ✅ | ||
82.900.000 kr. | 117.40 m² | 706.133 kr./m² | Fjölbýli | 2527458 | 03.04.2024 | ✅ | ||
80.900.000 kr. | 117.00 m² | 691.453 kr./m² | Fjölbýli | 2500365 | 24.07.2024 | ✅ | ||
81.900.000 kr. | 117.10 m² | 699.402 kr./m² | Fjölbýli | 2527449 | 15.08.2024 | ✅ |
Fastinn geymir kaupsamninga aftur til 2007
Sótt frá Þjóðskrá
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
loading
Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum
Eigindi auglýsingar
Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna
Eignanúmer : 1220297
Einnota auðkenni fyrir hverja eign.Verð : 81.900.000
Ásett verð eignarinnar í krónum.Brunabótamat : 0
Brunabótamat eignarinnar samkvæmt síðasta mati.Áhvílandi : 0
Heildarfjárhæð áhvílandi á eigninni.Fasteignamat : 26.100.000
Opinbert fasteignamat eignarinnar.Verð á fermetra : 699.402
Verð eignarinnar á hvern fermetra.Fermetrar : 117.1
Stærð eignarinnar mæld í fermetrum.Dagsetning skráningar : 13.02.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var gefin út.Staða auglýsingar : 23.02.2024
Dagsetningin þegar að auglýsingin var fjarlægð.Skráningardagur : 13.02.2024
Dagsetningin þegar eignin var skráð opinberlega.Póstnúmer : 600
Póstnúmer þar sem eignin er staðsett.Heimilisfang : Kjarnagata 55 íbúð 201
Fullt heimilisfang eignarinnar.Tegund eignar : fjolb
Tegund eignarinnar, t.d. íbúð, einbýlishús, fjölbýlishús.Byggingarár : 2023
Ár þegar bygging eignarinnar var fullgerð.Herbergi : 4
Heildarfjöldi herbergja í eigninni.Svefnherbergi : 3
Fjöldi svefnherbergja í eigninni.Stofur : 0
Fjöldi stofa í eigninni.Salerni : 1
Fjöldi salerna í eigninni.Inngangur : Sameiginlegur
Lýsing á aðalinngangi eignarinnar.Bílskúr : 1
Hvort eignin hafi bílskúr (satt/rangt).Heitur pottur : 1
Hvort eignin sé með heitum potti (satt/rangt).Verönd : 1
Hvort eignin hafi verönd (satt/rangt).Auka íbúð : 1
Hvort eignin innihaldi auka íbúð (satt/rangt).Sýnileg : 1
Hvort eignin sé sýnileg á vefsíðum eða öðrum miðlum (satt/rangt).Heiti heimilisfangs : Kjarnagata
Heiti eignar eða byggingar.Húsnúmer : 55
Húsnúmer eignarinnar.
Fasteignaskrá
Eignir í sömu byggingu og upplýsingar þeirra
Samskiptasaga byggingar
Atriði af fundum Byggingarfulltrúa Reykjavíkur er varðar eignina