Söluauglýsing: 1217590

Stjörnusteinar 23

825 Stokkseyri

Verð

58.900.000

Stærð

168.8

Fermetraverð

348.934 kr. / m²

Tegund

Einbýli

Fasteignamat

57.600.000

Fasteignasala

Landmark

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 29 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Um er að ræða einbýlishús á einni hæð ásamt frístandandi bílskúr við Stjörnusteina 23, Stokkseyri. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er birt flatarmál eignarinnar 168,8 fm þar af 51,2 fm bílskúr. Í dag eru þrjú svefnherbergi í húsinu en mjög auðvelt að bæta því fjórða við. Eign sem býður upp á mikla möguleika. 

Húsið er klætt að utan með viðarklæðningu, gluggar og hurðir úr tré, bárujárn á þaki sem er að sögn seljanda nýlegt. Gluggar hafa að mestu verið endurnýjaðir í húsinu. Bílskúrinn er frístandandi og með þriggja fasa rafmagni, malbikað bílaplan. Innaf bílskúnum er geymsla og í enda bílskúrsins er lúga niður í kartöflugryfju. Í geymslunni innaf bílskúrnum er bráðabirgðagólf, kominn tími á endurnýjun á gluggum. Í garðinum kaldur geymsluskúr og á baklóðinni er einnig steinsteyptur heitur pottur.  

SÆKJA SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu. Á vinstri hönd við inngang er geymsla með glugga (baðherbergi skv upphaflegum teikningum), ljósleiðarabox í þessu rými. Björt parketlögð stofa og innaf stofunni er borðstofa þar sem innangengt er í eldhúsið. Mjög auðvelt að breyta þessu rými í fjórða svefnherbergið. Eldhús með endurnýjaðri innréttingu að hluta ásamt blöndunartækjum og vaski ásamt lögnum að honum. Innaf eldhúsi er búr / geymsla með hillum. Fyrir ofan þetta rými er geymsluloft. Parketlagður svefnherbergisgangur með parketi á gólfi. Þrjú svefnherbergi og er parket á þeim öllum, fataskápur í tveimur þeirra. Baðherbergi með baðkari, neðri skáp, gluggi. Mjög rúmgott þvottahús með vaski og frá þvottahúsi er unnt að ganga út í bakgarð, vinnuborð og hægt að hafa þurrkara í góðri vinnuhæð, gólfhiti í þvottahúsi. Innaf þvottahúsi er geymsla / inntaksrými. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum fyrir utan baðherbergi en þar er dúkur. 

ÞETTA ER EIGN SEM BÝÐUR UPP Á MIKLA MÖGULEIKA. 

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]

Meðmæli fyrri viðskiptavina
Fylgdu mér á Facebook
Fylgdu mér á Instagram

Pantaðu FRÍTT söluverðmat á www.frittsoluverdmat.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband