Söluauglýsing: 1217242

Lundur 88

200 Kópavogur

Verð

Tilboð

Stærð

152.5

Fermetraverð

-

Tegund

Fjölbýli

Fasteignamat

108.800.000

Fasteignasala

RE/MAX

Símanúmer

hero

Þessi auglýsing hefur verið fjarlægð, hún var inni í 8 daga.

Staðsetning

Auglýsing

Lýsing

Lýsing á eigninni frá fasteignasölu

Eignin er komin aftur á sölu, sala gekk ekki eftir vegna fyrirvara en mikill áhugi var á eigninni síðast.

Erling Proppé lgfs. & REMAX kynna í einkasölu, stórglæsilega 4ra herbergja endaíbúð á 3.hæð með tveimur yfirbyggðum svölum og stæði í bílageymslu á frábærum stað í Lundi, 200 Kópavogi.  


Nánari upplýsingar fást hjá Erling Proppé lgfs. í síma 690-1300 eða á  [email protected] 

Skv. FMR er eignin skráð sem hér segir; Íbúð á hæð 145,7 fm, Geymsla 6,8 fm, samtals 152,5 fm.


Skipulag íbúðar:  forstofa, eldhús, stofa, borðstofa, hol, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, Þvottaherbergi, tvennar yfirbyggðar svalir og stæði í lokaðri bílageymslu.

Íbúðin er öll mjög björt, rúmgóð, stórir gólfsíðir gluggar í eldhúsi/borðstofu og gólfhiti í allri eigninni.

Nánari Lýsing:
Anddyri með flísum á gólfi og stórum fataskáp.
Eldhús er stórt og gott með eyju, fallegri hvítri innréttingu og svörtum stein á borði.  Borðstofa með parketi, gengið út á sólríkar yfirbyggðar svalir sem nýtast árið í kring. 
Stofa er björt og mjög rúmgóð með parketi, gengið út á yfirbyggðar 10,1 fm suðvestur svalir.
Sjónvarpshol er parketlagt  
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg hvít innrétting, baðkar og walk in sturta. 
Hjónaherbergið er stórt með parketi og fataherbergi, útgengi út á 7,3 fm svalir.
Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð, með parketi og skápum.
Þvottahús með innréttingu.

Stæði í lokaðri bílgeymslu, uppsett hleðslustöð.  Þvottastæði er í bílgeymsluhúsi.
Geymsla er 6,8 fm, hjóla og vagnageymsla er á 1. hæð hússins, öll sameign er mjög snyrtileg og vel umgengin. 

Húsið er byggt af Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars (BYGG)  og er álklætt með álklæddum gluggum.

Staðsetning: Eignin er staðsett við fossvogs jaðarinn, stutt í góðar gönguleiðir í Fossvogsdal og út á Kársnes.

Niðurlag: Um er að ræða fallega og rúmgóða, vel staðsetta eign i hinu vinsæla hverfi Lundi, stór og mikil stofa sem tengir saman alla íbúðina, herbergin eru rúmgóð og yfirbyggðar svalir sem nýtast allt árið. 

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir: 
Erling Proppé löggiltur fasteignasali í síma 690-1300 eða [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Ljósmyndir

Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing

Þinglýstir kaupsamningar

Á eignum sem deila heimilisfangi og stærð

loading

loading

Stundum hafa eignir ekki verið seldar nógu oft / yfir höfuð siðan 2007. Þá getur þú notað Samanburðinn sem greinir verðsögu sambærilegra eigna úr þinglýstum kaupsamningum

Eigindi auglýsingar

Ítarlegri atriði sem á við um auglýsinguna

PóstlistiÁbendingarHafa samband